Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, segir að tollurinn hafi lagt hald á yfir 14 þúsund einingar af ólöglegum peptíðum það sem af er þessu ári. Engin leið er fyrir yfirvöld að vita hversu mikið af efninu hefur komist í gegn til ólöglegrar sölu og hversu víðtæk noktunin er. Peptíð í fegrunarksyni njóta sífellt meiri vinsælda hér á landi.
„Það hafa líka verið haldlagðar umbúðir sem innihalda ekkert, sem má þá gera ráð fyrir að eigi að fara hér í pakkningu,“ sagði hún í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2.
Peptíð eru keðjur af amínósýrum. Efnið gengur kaupum og sölum, aðallega á samfélagsmiðlum, í útlöndum og hér heima. Nokkrar tegundir af peptíðum eru til sölu sem seljendur segja að hafi ólíka verkun; ein tegund á að vinna gegn öldrun, önnur er sögð laga húðvandamál og þriðja á að minnka matarlyst svo dæmi séu tekin. Peptíðin eru seld í vökvaformi, kosta tugi þúsunda og þeim þarf að sprauta undir húð.
„Það er mjög mikilvægt að fólk haldi þessu aðskildu. Hvað eru lögleg peptíð eins og til dæmis þyngdarstjórnunarlyf, insúlín og vaxtarhormón, eitthvað sem er ávísað af þínum lækni. Eða bara eitthvað sem þú ert að kaupa á netinu. Það er bara ólöglegt. Bæði að kaupa og selja lyf á netinu.“
Í greiningu á ólöglegum peptíðum sem tollgæslan lagði hald á í sumar kom í ljós að efnin innihéldu ekki endilega mikið af peptíðum en þeim mun meira af óhreinindum. Greiningin var framkvæmd með milligöngu Europol á rannsóknarstofu á vegum Evrópusambandsins.
Við greiningu kom í ljós að mikil óhreinindi voru í sýnishornunum, sem gerist oft þegar efni er framleitt við slæm skilyrði, og ómögulegt var að staðfesta að stór hluti sýnishornanna innihéldi virku lyfjaefnin sem þau voru sögð innihalda.
Dauðans alvara
„Þetta er bara dauðans alvara að vera að sprauta einhverju í þig sem þú veist ekkert hvað er eða hvaðan það kemur. Í besta falli inniheldur þetta ekkert virkt innihaldsefni og vonandi sem minnst af óhreinindum.“
Vaxandi áhyggjur í Evrópu
Rúna segir ólögleg peptíð vera vandamál víða í Evrópu og að áhyggjur fari vaxandi.
„Íslendingar eru, eins og við þekkjum, mjög fljótir að tileinka sér ýmislegt og þetta virðist vera eitt af því sem skellur á með miklum þunga hjá okkur. Áhirfavaldar og samfélagsmiðlar hafa mikil áhrif á fólk hér en þetta er áhyggju efni mjög víða í Evrópu.“
Hún nefnir að Hollendingar hafi meðal annars miklar áhyggjur af því að stórri sendingu af insúlíni var stolið þar í landi.
„Ef það verður farið að selja það sem eitthvað annað þá getur það valdið miklum skaða.“
Hægt er að hlusta á viðtalið í Morgunútvarpinu í heild sinni í spilaranum hér að neðan.