Greint var frá því í morgun að þeir Alexander Stubb forseti Finnlands og Jonas Gahr Støre forsætisráðherra hefðu rætt símleiðis við Pútín. Þeir hafa sagt samtalið hafa verið hreinskiptið og viðamikið, þeir hafi lagt áherslu á frið í Úkraínu. Nú kemur fram í umfjöllun norrænna miðla að símtalið hafi verið níutíu mínútna langt og er haft eftir Støre að bandamenn hafi verið upplýstir um símtalið fyrirfram.
„Ég er mjög efins um þetta einkaframtak Norðmanna og Finna. Þetta var ekki gert í samráði við nokkurt okkar hinna,“ segir Mette Frederiksen í samtali við danska ríkisútvarpið. „Ég sé engin merki um að Rússland vilji frið í Evrópu, hvorki í ljósi blendingsstríðsins sem á sér stað á hverjum einasta degi né í ljósi stríðsins í Úkraínu þar sem Rússar halda árásum sínum áfram af hörku á hverjum degi. Ég tel að Evrópa eigi að standa saman í þessu máli í stað þess að hver fari sínar eigin leiðir.“
Hún segist ekki sjá hverju Norðmenn og Finnar haldi að þeir geti náð fram með samtalinu. Barist hafi verið fyrir samstöðu Evrópu gagnvart Rússum um árabil og segist Mette hafa látið óánægju sína í ljós við leiðtogana tvo. Rússar hafi hert árásir sínar frekar en hitt.
Støre hefur ítrekað eftir gagnrýni Frederiksen að Noregur og Finnland hafi ekki talað fyrir hönd Evrópu við Pútín. Hann leggur áherslu á að Noregur sé nágrannaríki Rússlands og hafi því hagsmuni af því að viðhalda samskiptum við ríkið. Málið snúist ekki um sundrun heldur að gæta hagsmuna Noregs.
Fram kemur í umfjöllun danska ríkisútvarpsins að samkvæmt upplýsingum frá Rússum hafi Pútín sagt í samtali sínu við leiðtogana tvo að stefna ESB og NATO fæli í sér ögrun sem ætti þátt í því að lengja stríðið í Úkraínu. Pútín á einnig að hafa sagt að „friður sé aðeins mögulegur ef tekið er fullt og skilyrðislaust tillit til hagsmuna Rússlands.“
Þá hefur DR eftir Volodomír Selenskí forseta Úkraínu að hann hafi rætt símtalið við leiðtogana tvo. Hann segist þakklátur þeim fyrir ítarlega kynningu á samtalinu og fyrir virkan stuðning þeirra við erindreka Úkraínu og friðarumleitanir. Hann hafi þakkað leiðtogunum fyrir að hafa biðlað til Pútíns um að láta af árásum sínum á orkuinnviði í Úkraínu.