Fækkað var um sjötíu og fjögur stöðugildi hjá Reykjavíkurborg í morgun og þar af fengu fimmtíu starfsmenn beina uppsögn. Í tilkynningu borgarinnar kemur fram að um sé að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda.
„Það er bara Reykjavíkurborg sem verður að svara fyrir þetta allt saman,“ segir Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, í samtali við fréttastofu nú síðdegis.
Hún gat ekki staðfest hvort tilkynning hafi borist stofnuninni um hópuppsögn en segir að á mánudag verði birt tilkynning um allar hópuppsagnir í október. Í síðasta mánuði sagði Unnur í viðtali við fréttastofu að ekki sæi fyrir endann á uppsögnum og að hápunkti atvinnuleysis hér á landi væri ekki náð.
„Hrikalegt högg“
Uppsagnirnar í dag komi ekki á óvart.
„Meirihlutinn var búinn að gefa út að þessu væri ekki lokið, þessum hagræðingargerðum, en auðvitað er þetta hrikalegt högg fyrir þetta fólk að missa vinnuna,“ segir Unnur.
„Þau eiga allan sinn uppsagnarfrest, sem ég á von á að sé þrír mánuðir plús, og svo geta þau alltaf leitað til okkar með að finna út hver réttindi þeirra eru og hvaða réttindi þau geta nýtt sér.“
Þá segir Unnur að Vinnumálastofnun bjóði upp á aðstoð og sé með úrræði fyrir fólk sem misst hefur vinnuna.
„Við erum með það ef eftir því er leitað. Við höfum ekki ákveðið neitt um það að stíga þarna inn í,“ segir Unnur að lokum.