Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins og formaður borgarráðs, segir uppsagnirnar sem gripið var til í dag miða að því að verja og bæta framlínuþjónustu við borgarbúa og ráðast í viðhald og uppbyggingu.
50 var sagt upp störfum og alls 74 stöðugildi lögð niður. Þetta er þriðja uppsagnarlota borgarstjórnarinnar sem tók við í júní.
„Reksturinn gengur ekki nægilega vel og það er viðvarandi hallarekstur. Það er óvissa og ekki bjart framundan í efnahagsmálum, vextir háir og verðbólgan þrálát og við erum í þessu til þess að geta ráðist í betri þjónustu og innviðafjárfestingar sem mikil krafa er um,“ segir Einar.
Hann segir það krefjandi verkefni að hagræða fyrir 2,3 milljarða króna í rekstri borgarinnar. Kríterían fyrir stöðugildin sem lögð voru niður í dag var að þau væru ekki í beinni þjónustu við borgarbúa og að þau væru ekki tekjuskapandi.
„Af því við viljum standa áfram vörð um húsnæðisuppbygginguna og fá tekjur af lóðasölu og stuðla að húsnæðisuppbyggingu.“
Spurður hvort störfin hafi þá verið óþörf segir Einar:
„Nei, alls ekki. Það hafa allir nóg að gera en það er okkar ábyrgð að horfast í augu við stórt stjórnkerfi. Það er okkar ábyrgð að hagræða í rekstri vegna þess að reksturinn er ekki sjálfbær. Ég ætla ekki að gera lítið úr þessum störfum, þetta er allt saman hæft og gott starfsfólk og mikilvæg störf sem það hefur unnið, en við getum ekki þanið út stjórnkerfið áfram eða haldið því óbreyttu, við verðum að horfast í augu við vandann,“ segir Einar.
Einar segir uppsagnalotuna í dag þá þriðju og síðustu, sem betur fer.
„Við höldum auðvitað áfram að rýna reksturinn. Það er fjölmargt sem þarf að taka á: veikindahlutfall, það þarf að skoða útboðsmálin og innnkaupin, umsýsla fasteigna okkar og fleira sem skiptir mjög miklu máli þegar kemur að rekstrinum. Þannig verkefnið heldur áfram.“