Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, segir óboðlegt hvernig staðið var að uppsögnum hjá Reykjavíkurborg í dag. Hann segir stéttarfélagið enn bíða rökstuðnings frá borginni vegna fyrri uppsagnalota.
50 var sagt upp störfum í dag og 74 stöðugildi lögð niður. Alls hafa 130 stöðugildi verið lögð niður í þremur lotum síðan ný borgarstjórn tók við í sumar.
Kári segir mjög þungt hljóð í hans fólki og uppsagnirnar gríðarlegt áfall bæði fyrir þá sem sagt var upp og samstarfsfólk þeirra. Um 40% starfsfólks Reykjavíkurborgar er í Sameyki.
Bíða enn rökstuðnings frá borginni síðan í fyrri uppsagnalotum
Kári segir að stéttarfélagið biðli til fólks að leita til þeirra. Félagið skoði hvert mál og óski eftir rökstuðningi fyrir hverja uppsögn.
„En því miður þá er það náttúrlega þannig að staðan hjá borginni er að ennbíðum við eftir rökstuðningi um helming málanna sem við höfum óska eftir í fyrri uppsögnunum,“ segir Kári.
Kári gagnrýnir hvernig staðið var að uppsögnunum í morgun. Aðferðafræðin hafi verið sú sama og í síðustu uppsagnalotum.
„Það eru haldnir leynifundir í að nafni þess að það sé verið að hlífa fólki. Það er ekkert verið að hlífa fólki, það er búið að vera í yfirvofandi að segja fólki upp í lengri tíma og mikil óvissa hjá öllu starfsfólki borgarinnar. Síðan er fólk boðað með engum fyrirvara, 15 mínútna fyrirvara, og það er hringt í fólk í veikindaleyfi, sem er búið að vera lengi í veikindaleyfi jafnvel, og sagt að það sé að missa starf sitt. Þetta er bara með öllu óboðlegt.“
Borgaryfirvöld segja að með hagræðingaraðgerðum dagsins sparist 1,3 milljarðar króna, og alls hafi verið hagrætt um 2,3 milljarða með uppsögnum síðan í sumar.
Kári segir borgaryfirvöld skorta heildarsýn.
„Fjárhagur borgarinnar er ekki bara launakostnaður borgarinnar. Við erum að tala um marga aðra kostnaðarliði m.a. aðkeypta þjónustu. Á seinasta ári voru þetta 60 milljarðar og meirihlutinn virðist ætla ekki að horfa neitt á þennan kostnað,“ segir Kári.
„Það er þar á meðal útvistun verkefna og maður veltir fyrir sér að með þessum uppsögnum mun þá sá kostnaðarliður hækka með tilheyrandi kostnaði? Er góð leið að fækka þá starfsfólkinu í nafni þess að hækka þá kostnaðinn í aðkeyptri þjónustu? Hver er þá sparnaðurinn?“