Norska flugfélagið Norwegian sagði í dag upp 123 starfsmönnum á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn. Samkvæmt danska miðlinum Finans var þetta gert eftir að félagið lauk viðræðum við stéttarfélag starfsfólksins, Flyvebranchens Personale Union, FPU.
Haft er eftir Söru Neergaard, framkvæmdastjóri Norwegian í Danmörku, að þetta sé sorgardagur fyrir Norwegian en að uppsagnir hafi verið nauðsynlegar.
Uppsagnirnar ná til 53 flugmanna og 70 flugþjóna.
Draga úr umsvifum á Kastrup yfir vetrartímann
Norwegian var næststærsta flugfélagið á Kastrup-flugvelli í fyrra á eftir Scandinavian Airlines, SAS. Norwegian flutti 15% flugfarþega sem fóru í gegnum flugvöllinn og flaug til 77 áfangastaða.
Samkvæmt Norwegian stafa uppsagnirnar meðal annars af miklum mun á eftirspurn eftir flugi hjá félaginu frá Kaupmannahöfn á sumrin og veturna.
Nergaard segir að félagið þurfi á 16 vélum að halda yfir háannatímann á sumrin en á veturna þurfi aðeins tíu vélar. Norwegian hafi boðið FPU upp á málamiðlanir sem hafi getað dregið úr fjölda uppsagna en það hafi ekki fallist á þær. Þar á meðal bauðst félagið til að veita starfsfólki launalaust leyfi og árstíðabundna starfssamninga.
Spara með því að nota spænska áhafnir
Nú eftir uppsagnirnar ætlar flugfélagið að fækka vélum sínum sem hafa fast aðsetur á Kastrup yfir háannatíma. Norwegian ætlar hins vegar ekki að fækka ferðum frá Kastrup yfir sumartímann. Þess í stað notar félagið áhafnir sem hafa aðsetur á Spáni. Launakostnaður félagsins er töluvert lægri þar en á Norðurlöndunum.
Thilde Waast, formaður stéttarfélagsins FPU, segir uppsagnirnar og áætlanir félagsins tilraun til að grafa undan dönskum launakjörum.
Haft er eftir henni að Norwegian vilji skipta út dönskum starfsmönnum fyrir „ódýrara vinnuafl á Spáni“.
Félag íslenskra atvinnuflugmanna tók í svipaðan streng og FPU í sumar þegar ljóst var að Icelandair hafði keypt tæplega helmingshlut í Fly Play Europe á Möltu. FÍA sagði kaup Icelandair bera þess merki að flugfélagið hygðist komast undan íslenskum kjarasamningum og eftirliti yfirvalda.