Er þetta meðal atriða sem voru skráð í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan fimm í morgun til klukkan 17:00 en alls voru 68 mál skráð í kerfið á umræddu tímabili. Þá barst lögreglunni tilkynning um þjófnað úr verslun í hverfi 103 sem er á varðsvæði lögreglustöðvar eitt en hún sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi.
Í hverfi 105 var ökumaður stöðvaður vegna gruns um að aka undir áhrifum áfengis en hann var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku. Þá var annar ökumaður stöðvaður í akstri í hverfi 110 en það er í umdæmi lögreglustöðvar fjögur. Var sá grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna en var sömuleiðis látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.