Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokið leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll ofan í sprungu í Grindavík í janúar 2024. Við leitina fundust engar vísbendingar sem varpað gætu ljósi á hvar líkamsleifar hans er að finna, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.
Leitin hófst í morgun og stóð í sjö og hálfa klukkustund.
„Með leitaraðgerð dagsins hefur þeim aðgerðum verið lokið sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum telur unnt að ráðast í á grundvelli fyrirliggjandi áhættumats. Aðrar aðgerðir sem horft hefur verið til þykja of áhættusamar. Ekki verður ráðist í frekari leitaraðgerðir og telst formlegri leit af hálfu lögreglu lokið,“ segir í tilkynningu lögreglu.
Þar segir jafnframt að frekari upplýsingar verði ekki veittar.
Fréttin verður uppfærð.