Trump stóreykur losun metans
Bandaríkjaforseti losar um reglur sem eiga að hindra að metan berist í andrúmsloftið við olíuvinnslu. Efnið veldur um þriðjungi hlýnunar frá því fyrir iðnbyltingu.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hyggst í dag kynna umfangsmikla afléttingu reglna sem takmarka losun olíu- og gasframleiðenda á metani, gróðurhúsalofttegund sem veldur mikilli hlýnun.
Trump mun kynna breytingarnar á stuðningsfundi fyrir Ken Paxton, ríkissaksóknara Texas, sem sækist eftir sæti í öldungadeildinni, að sögn embættismanns í Hvíta húsinu. Texas er langstærsta framleiðsluríki jarðefnaeldsneytis í Bandaríkjunum.
Umhverfisverndarstofnun Bandaríkjanna (EPA) sagði í yfirlýsingu fyrr í þessum mánuði að afnám reglna sem Joe Biden, forveri Trumps í forsetaembætti, setti myndi spara 45 milljarða dollara, eða um 5.500 milljarða króna. Stofnunin sundurliðaði ekki þá upphæð nánar.
„Bandaríkjamenn verða að hafa efni á að hita heimili sín á veturna og fylla á bílinn til að komast í vinnuna. Það geta þeir ekki þegar þeir sem framleiða orkuna þurfa að bera óþarfa byrðar,“ sagði Lee Zeldin, forstjóri Umhverfisverndarstofnunarinnar.
Metan er meginuppistaða jarðgass og á, næst á eftir koltvísýringi, stærstan þátt í hlýnun jarðar. …