Við sitjum í stofu í fjölbýlishúsi í Grafarvogi. Fjölmargar myndir af ungum manni prýða þar veggi og borð.
„Hann var náttúrulega alveg ótrúlega skemmtileg persóna. Hann þurfti alveg sitt pláss og hann var rosalega skapandi. Endalaust að skapa og skapa,“ segir Sigrún Pálmadóttir um dótturson sinn, Arnar Atla Björnsson.
„Hann var rosalega hlýr og hann var mikið fyrir knús, sem er mjög sérstakt af því hann var með einhverfugreininguna. Ætli það sé ekki eina greiningin sem hann fékk, hefur fengið, það er að hann væri á einhverfurófinu.“
Hvenær fór að bera á einhverjum vanda hjá honum?
„Bara þegar hann fór á gelgjuna, gelgjuskeiðið byrjaði,“ segir Sigrún.
Arnar Atli var eitt af þeim börnum sem eru með svokallaðan fjölþættan vanda. Umræðan um þennan hóp barna og úrræðaleysi fyrir þau hefur aukist á síðustu árum. Samt virðist börnum með slíkan vanda ekki fjölga, ef marka má sérfræðinga innan bæði kerfisins og fræðasamfélagsins.
Þyrí Halla Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, segir að hópurinn hafi í raun verið tiltölulega stöðugur undanfarin ár.
„En það koma svo sem alltaf einhverjir svona toppar. Vandi þessara barna er þyngri og erfiðari. Og þeir sem hafa verið í bransanum svona lengi, þau finna það mjög skýrt.“
Eiríkur K. Þorvarðarson, framkvæmdastjóri sviðs búsetu og samþættrar þjónustu hjá Barna- og fjölskyldustofu, tekur í svipaðan streng.
„Ég held að við getum svona verið sammála um það að þetta er harðari heimur. Við erum að sjá harðari efni, við erum að sjá meira ofbeldi inni í kerfinu okkar og í samfélaginu okkar.“
Tíu ára í búsetu utan heimilis
Ísey Jökulsdóttir á fjórtán ára dóttur sem var þegar orðið erfitt að hafa inni á heimilinu fyrir nokkrum árum. Fjölskyldan þurfti á aðstoð utan heimilisins að halda.
„Hún hefur gengið í gegnum bara mjög erfiða hluti sem hefur náttúrulega mótað hana á öðruvísi hátt en maður hefði kannski óskað börnunum sínum,“ segir Ísey.
„Hún glímir við áfallastreitu, það er einmitt hegðunarvandi og svo náttúrulega er hún með ADHD og einhverf, þannig að hún er með þjónustuþarfir.“
Stúlkan flakkaði á milli staða: skóla, frístundaheimila og stuðningsúrræða. Að lokum var sótt um fyrir hana í Klettabæ sem er meðal annars búsetuúrræði fyrir börn. Þá var stúlkan tíu ára, segir Ísey.
„Mér var svolítið tilkynnt að það að reyna að fá stuðning, fósturfjölskyldu í stuðning, er bara ekkert hægt fyrir börn sem eru með fjölþættan vanda eins og hún og greiningar. Þannig að þetta væri svona eina úrræðið í boði og svona endastöðin.“
Fyrir börn í þessari stöðu eru til sérstök einkarekin búsetuúrræði. Þeim hefur fjölgað hratt á síðastliðnum áratug. Af þeim úrræðum sem vista börn með fjölþættan vanda og eru með leyfi frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála til slíkrar vistunar var aðeins eitt starfandi fyrir tíu árum. Nú eru þau orðin sjö.
Árið 2024 voru rekstrartekjur þeirra þriggja sem voru í rekstri samtals um átta milljarðar. Það voru Klettabær, Heilindi og Vinakot.
Einn og hálfur milljarður frá Reykjavík til Klettabæjar í fyrra
Sveitarfélögin hafa undanfarin ár gert þjónustusamninga við þessi einkareknu úrræði og sent börn þangað. Reykjavíkurborg er með tvo virka þjónustusamninga við slík úrræði um vistun barna.
Í fyrra greiddi borgin um einn og hálfan milljarð til Klettabæjar.
Þyrí Halla hjá Barnavernd Reykjavíkur segir að þetta sé vegna þess að í þó nokkur ár hafi engin önnur úrræði staðið til boða fyrir þennan þyngsta hóp barna.
Áður sá ríkið um rekstur úrræða fyrir börn með svipaðan vanda, gjarnan með heimilum á landsbyggðinni sem mjög misjöfn reynsla var af.
„Samkvæmt barnaverndarlögum þá á ríkið að reka úrræði fyrir börn með hegðunarvanda, vímuefnavanda og sem beita ofbeldi,“ segir Þyrí Halla.
„Svo var það fyrir svona um það bil 20 árum að það var bara tekin svona stefnumarkandi ákvörðun um að hætta að reka þessi úrræði. Þörfin fyrir að vista börn utan heimilis var áfram til staðar þótt ríkið hætti að reka þessi úrræði. Og þá auðvitað voru aðilar sem sáu þörfina og stofnuðu þessi úrræði.“
Vinakot og Klettabær
Fyrsta einkarekna búsetuúrræðið fyrir þennan hóp barna, sem enn er starfandi, varð til í núverandi mynd 2013. Það heitir Vinakot. Það var undir stjórn þeirra Aðalheiðar Bragadóttur Hjelm og Jóhönnu M. Fleckenstein. Árið 2018 stofnaði Jóhanna svo Klettabæ, ásamt Guðjóni Þorkelssyni Gíslasyni, en Aðalheiður hélt áfram með Vinakot.
Í Klettabæ eru börn og fullorðnir vistuð, í lengri eða skemmri tíma. Þá býður fyrirtækið til dæmis upp á skólaúrræði á grunn- og framhaldsskólastigi, og ýmsa aðra þjónustu.
Samkvæmt forsvarsmönnum fyrirtækisins eru 83 einstaklingar í þjónustu hjá því í heildina, þar af 52 börn. 27 einstaklingar eru í fullri búsetu. Sá yngsti er níu ára.
Tekjur yfir sex milljarðar 2024
Erla Rós Ólafsdóttir vann hjá Klettabæ þar til á þessu ári. Starfsmenn þar eru um fimm hundruð talsins.
Hún er íþróttakona, æfir spjótkast, og leggur stund á nám í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands.
„Ég hef verið mikið að þjálfa og vinna mikið með börnum,“ segir Erla Rós. Hún var sérstaklega áhugasöm um að vinna með skjólstæðingahópi Klettabæjar.
„Ég hef mikinn áhuga á uppeldi barna og þroska og hreyfiþroska, bara öllu sem viðkemur því að verða fullorðinn og sjálfstæður einstaklingur. Þess vegna fannst mér þetta svolítið spennandi að vinna með börnum sem eru veikari eða þurfa meiri aðstoð eða bara leiðbeiningu í lífið.“
Í Klettabæ eru skjólstæðingar almennt í sér íbúð en starfsmenn eru með þeim allan sólarhringinn.
„Þetta eru allt bara mjög fínar íbúðir, myndi ég segja, sem þessi úrræði eru. Góð aðstaða og fínt starfsumhverfi þannig,“ segir Erla Rós.
Klettabær er í dag langstærsta úrræðið af þessum toga og hefur vaxið hratt. Árið 2018 voru tekjur af starfseminni rúmlega 649 milljónir króna en þær voru yfir sex milljarðar árið 2024. Veltan hefur vaxið jafnt og þétt frá stofnun fyrirtækisins, eða um um það bil milljarð á ári.
Erla Rós lýsir vinnufyrirkomulaginu, en í Klettabæ er meirihluti starfsmanna í vaktavinnu.
„Morgunvaktirnar eru átta til fjögur og svo eru kvöld- og næturvaktir, nema þær fara oftast saman. Þannig að þú tekur kvöld- og næturvakt.“
16 tíma þá?
„Já.“
Guðjón Þ. Gíslason, framkvæmdastjóri Klettabæjar og annar eigandinn, segir í skriflegu svari að þetta fyrirkomulag þekkist en að ekki sé gert ráð fyrir því að starfsfólk taki slíka vakt að jafnaði oftar en einu sinni í viku. Undantekningar hafi þó verið gerðar við mikið álag. Eigendur Klettabæjar, þau Guðjón og Jóhanna M. Fleckenstein, vildu ekki veita viðtal.
Starfsmenn sofandi á næturvöktum
Birta vann líka í Klettabæ. Birta er reyndar ekki hennar rétta nafn. Hún vildi ekki koma fram undir nafni vegna starfsins sem hún sinnir í dag, að hluta til með sama skjólstæðingahópi. Birta útskrifaðist sem félagsráðgjafi í sumar.
Hún talar líka um álag og segir að tvöfaldar vaktir séu alls ekki það eina.
„Ég fékk að heyra það frá öðrum starfsmönnum innan fyrirtækisins að margir hefðu verið á mörgum sólarhringa vöktum.“
Í röð?
„Já.“
Þetta rímar við frásagnir fleira starfsfólks í samtölum við Kveik.
Birta lýsir því líka að starfsmenn hafi átt það til að sofa á næturvöktum í Klettabæ. Hún segir að þetta geti haft alvarlegar afleiðingar.
„Ég hef orðið vitni að því að sjálfsskaði átti sér stað á meðan starfsmenn sváfu. Og strok átti sér stað.“
Guðjón segir í skriflega svarinu að starfsfólki Klettabæjar sé óheimilt að sofa á næturvöktum.
Lögregla fann barnið á vergangi meðan starfsmenn sváfu
Frá því að dóttir Íseyjar byrjaði í þjónustu hjá Klettabæ og þar til í dag hefur hún ýmist verið í búsetu hluta af tímanum eða í fullri búsetu þegar þörfin hefur verið mikil eins og núna.
Hvernig hefur ykkar reynsla af Klettabæ verið?
„Hún hefur verið alls konar,“ segir Ísey. Hún nefnir til að mynda svefn starfsmanna á næturvöktum.
„Starfsmenn hafa verið sofandi á næturvakt og barnið mitt hefur farið út og labbar bara fram hjá þeim út um svalahurðina og finnst af lögreglunni á tánum langt í burtu. Þá vissu þau ekki einu sinni að hún hefði farið.“
Eigendur Klettabæjar segja það miður að þetta hafi átt sér stað og að um alvarlegt tilvik hafi verið að ræða.
„Starfsmenn brugðust starfsskyldum sínum með því að sofna á vakt og þjónustunotandi, sem er ólögráða einstaklingur, fór úr íbúðinni um miðja nótt. Einstaklingurinn kom síðan í fylgd lögreglu aftur heim í íbúðina,“ segir í skriflega svarinu. Þar kemur jafnframt fram að viðkomandi starfsmenn hafi fengið skriflega áminningu vegna málsins og að þeim hafi verið óheimilt að taka næturvaktir í framhaldinu.
Metnaðarleysi og skortur á fagfólki
Starfsmenn og fyrrverandi starfsmenn einkarekinna búsetuúrræða sem vista þennan hóp barna nefndu ítrekað skort á fagmenntuðu starfsfólki og faglegri þekkingu í samtölum við Kveik.
„Sem mér finnst alveg smá galið ef þú ert að vinna með svona veikan hóp einstaklinga. Að meirihluti starfsmanna sé ekki fagfólk og svo kannski einhverjir aðrir með,“ segir Erla Rós.
Ísey segir að þeirra reynsla af starfsmannahópi Klettabæjar sé misjöfn.
„Sumt starfsfólk þarna er algjörlega frábært og svo sér maður líka starfsmenn sem eru þarna bara í vinnunni og þetta er ekkert annað.“
Erla Rós segist oft hafa orðið vitni að metnaðarleysi ákveðins starfsfólks, sem hafi vakið furðu hjá henni.
„Maður hefur alveg mætt og séð starfsmenn sem bara mæta og sitja bara í sófanum. Þjónustuþeginn er kannski bara inni í herbergi.“
Þetta starfsfólk virðist kæra sig kollótt um virkni skjólstæðinganna, að hennar sögn.
„Er ekkert mikið að pæla í honum, að virkja hann eða bjóða honum að gera neitt. Af því að þetta er bara átta tíma vakt og hann vill að vaktin líði og er bara að horfa á Netflix.“
Erla Rós lýsir því hvernig starfið horfði við henni þegar hún sótti um það á sínum tíma. Hún segist hafa verið mjög áhugasöm um að vinna með börnum og einstaklingum með fjölþættan vanda en að umgjörðin hafi verið önnur en hún bjóst við.
„Ég hélt að þetta væri svona, að þjónustuþegar kæmu þarna tímabundið, kæmu í einhvern tíma og að þetta væri einmitt til að leiðbeina þeim á rétta braut eða réttari braut, hjálpa þeim að vera sjálfstæðari, til þess að þau myndu útskrifast sem fyrst. Maður vill náttúrulega bara að þau séu í eðlilegum skóla og lifi eðlilegu lífi og séu ekki endilega útskúfuð í alltof langan tíma.“
Ísey er þeirrar skoðunar að í Klettabæ sé ekki nógu margt fagfólk sem sé fært um að vinna með dóttur sinni að einhverju marki, eins og hún þurfi á að halda.
„Bara alls ekki. Það hefur aldrei verið nein einhver þjónusta þarna. Hún hefur aldrei fengið einhverja aðstoð varðandi sinn vanda eitthvað þannig.“
Guðjón Þ. Gíslason, annar eigenda Klettabæjar, segir í skriflegu svari að mikið sé lagt upp úr því að skapa þjónustunotendum eins heimilislegt umhverfi og kostur er á. Fagteymi Klettabæjar hafi yfirumsjón með starfinu. Í því séu klínískur sálfræðingur, einhverfuráðgjafi, klínískir atferlisfræðingar, þroskaþjálfi, tómstunda- og félagsmálafræðingur og félagsráðgjafar, auk framkvæmdastjóra Klettabæjar.
Starfsfólk Klettabæjar fái reglulega fræðslu og þjálfun, auk tækifæra til að afla sér frekari fagþekkingar.
Vont að geta ekki haft barnið heima
Arnar Atli kom líka við í Klettabæ. Aðdragandinn að því var langur. Hann ólst að miklu leyti upp hjá Sigrúnu ömmu sinni. Eins og mörg börn með fjölþættan vanda átti hann erfitt uppdráttar í skóla og var lagður í einelti.
„Þegar við flytjum upp í Hamrahverfið var ég svo ánægð því það var einhverfudeild þar og ég hugsaði að nú fengi hann þá hjálp sem hann þyrfti. En þá var akkúrat einhverfudeildin lögð niður og skóli án aðgreiningar settur í gang, sem er það fáránlegasta sem hefur verið gert held ég,“ segir Sigrún.
Hún segir að Arnar Atli hafi flakkað mikið á milli skóla og að eftir því sem hann upplifði sig lengur utangátta og óvelkominn hafi mikil ólga byggst upp innra með honum.
„Hann fór að ráðast á mig, kýla mig og sparka í mig,“ segir Sigrún. „Sem betur fer var fólk sem bjó fyrir neðan, það vissi hvað væri, þannig að þau komu yfirleitt upp og björguðu mér því að ég hefði ekki ráðið við hann ein.“
Ástandið á heimilinu varð þyngra og á endanum þurfti að gera breytingar.
„Þar af leiðandi þorði ég ekki að hafa hann lengur af því að þetta var orðið svolítið alvarlegt, eða brútalt.“
Þegar Arnar Atli var 15 ára urðu kaflaskil. Hann flutti út af heimilinu og í búsetuúrræðið Vinakot. Þaðan flutti hann í íbúð á vegum Klettabæjar.
Þetta var Sigrúnu erfið ákvörðun.
„Hún er vond, rosalega vond. Og ég var alltaf með bakþanka og enn þá með bakþanka, hvort ég hefði getað gert þetta einhvern veginn öðruvísi heldur en að láta hann frá mér,“ segir Sigrún.
„Hann sagði mér það líka sjálfur að það sem honum hafi fundist erfiðast, það var þegar ég lét hann fara.“
Ísey tekur í svipaðan streng þegar hún er spurð um reynsluna af því að þurfa að senda dóttur sína frá sér.
„Hún er bara ótrúlega vond. Ég einhvern veginn hef einmitt upplifað það að mér hafi bara mistekist.“
Ný úrræði spretta upp
Andri Már Ágústsson er einn af þeim sem hafa stofnað búsetuúrræði fyrir börn á síðustu árum. Hann stofnaði ásamt fleirum búsetuúrræðið Birtuhlíð í fyrra, eftir að hafa unnið bæði í tengslum við meðferðarstarf fullorðinna og barna og í öðru búsetuúrræði.
Andri Már býður fréttamanni og tökumanni Kveiks inn í íbúð sem Birtuhlíð hefur, að hans sögn, vistað tvo skjólstæðinga í á mismunandi tímum. Núna er enginn skjólstæðingur hjá úrræðinu og Andri Már gerir ráð fyrir að hætta starfsemi, að minnsta kosti í bili.
Hann rifjar upp aðdraganda þess að hann stofnaði úrræðið en hann vann áður á Stuðlum.
„Bara frá því að ég byrjaði að vinna á Stuðlum og þangað til ég hætti – ég var ekki það lengi, rúmlega tvö ár – á þeim tíma þá jókst vandinn.“
Andri Már segist vilja trúa því að hægt sé að ná árangri með vanda barnanna án þess að það þurfi að vista þau í slíku búsetuúrræði árum saman.
„Ég veit bara persónulega til þess mjög nálægt mér, þá þekki ég barn sem hefur verið í svona úrræði til lengri tíma og hefur komið út úr því úrræði með enga hæfni til að takast á við lífið og þarf að vera upp á félagslega kerfið algjörlega kominn.“
Voru mjög ánægð með Klettabæ
Arnar Atli var einn þeirra sem bjuggu í slíku úrræði í fleiri ár. Hann bjó fyrst í Vinakoti og svo Klettabæ frá fimmtán ára aldri og fram yfir tvítugt, alls í um sex ár.
Sigrún, amma hans, var mjög ánægð með upplifun þeirra af Klettabæ.
„Það voru æðislegir strákar sem voru að vinna með honum, svona ungir strákar og þeir voru bara miklu meiri félagar heldur en starfsmenn.“
Reyndar þykir henni þetta langtum besta úrræðið sem Arnar Atli fékk nokkurn tíma þjónustu hjá.
„Þetta er eina úrræðið þar sem mér finnst hafa verið hugsað um hans hag og hann mætt hlýju og skilningi.“
Sigrún rifjar upp þjónustu þeirra sem unnu með barnabarni hennar í Klettabæ.
„Á heildina litið voru þeir mjög góðir að gera hlutina með honum og kannski stundum að gera hlutina of mikið fyrir hann. Það má eiginlega segja að hann hafi fengið of mikla þjónustu. Já, hann var dekraður.“
Lítur á sig sem yfirmanninn
Dóttir Íseyjar er í fullri búsetu í Klettabæ. Þessa dagana gistir hún þó heima aðra hverja helgi og kemur heim tvo daga í viku. Ísey segist finna ákveðinn mun þegar stúlkan er heima varðandi þátttöku í heimilislífi og verkum.
„Þá finnst henni núna verra að vera heima heldur en í úrræðinu því hún þarf að gera meira af hlutum hérna heima, af því að það er ekki bara tekið til og hún þarf að gera hlutina sjálf.“
Ísey segir að það séu alltaf tveir starfsmenn á vakt í íbúð stúlkunnar hjá Klettabæ – hvort sem hún dvelji þar eða ekki.
„Þegar hún er hjá okkur þá hefur hún fengið starfsmenn til þess að koma með mat og eitthvað til hennar,“ segir Ísey. Það hafi til að mynda gerst þegar móðirin hafði neitað því að verða við bón um ákveðinn mat. Stuttu síðar hafi starfsmaður Klettabæjar bankað upp á með það sem stúlkan vildi. Þetta hafi gerst oftar en einu sinni.
„Hún segir að þau séu að vinna fyrir sig. Hún lítur svolítið á þetta eins og hún sé yfirmaðurinn og þetta séu hennar starfsmenn.“
Vonaði að hann gæti farið út í samfélagið
En hvað hélt Sigrún að myndi gerast í lífi Arnars Atla eftir Klettabæ?
„Ég eiginlega vonaðist náttúrulega bara til þess að hann gæti komist út í þjóðfélagið og orðið bara, alltaf kannski dálítið skrýtinn og allt í lagi með það, en hann gæti samt farið út í þjóðfélagið og plummað sig svona þokkalega. Það var eitthvað sem ég sá alltaf fyrir mér.“
Hún sá fyrir sér að Arnari Atla færi fram en það varð ekki.
„Nei, ég myndi segja að það hafi ekki verið.“
Fyrirtæki græða á því að barni gangi ekki vel
Andri Már bendir á ákveðið vandamál í rekstri einkareknu úrræðanna þegar kemur að því að koma börnum aftur út í eðlilegra líf.
„Síðan er það náttúrulega þannig að þetta er ótrúlega erfitt þegar þú færð barn til þín. Þú færð samning sem borgar vel og ert með fólk í vinnu. Svo gengur vel og þú þarft að segja samningnum upp af því að það gengur svo vel og hann treystir sér til að fara heim.“
Þá sé í raun alltaf verið að taka ákvörðun um breytingu í rekstri, að draga saman seglin og jafnvel segja upp starfsfólki.
„Þetta er svona kannski ákveðið bissnessmódel sem meikar ekki alveg sens þegar fyrirtækið græðir á því að barni gangi ekki nógu vel.“
Ríkið tekur við börnunum – að minnsta kosti sumum
Í fyrra var gert samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um að ríkið tæki að sér ábyrgð á sérhæfðri þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem vista þarf utan heimilis í stað sveitarfélaganna. Ríkið hefur frá áramótum borið fjárhagslega ábyrgð en frá næstu áramótum verður fagleg ábyrgð líka ríkisins. Ríkið áformar að opna eigin búsetuúrræði.
Eiríkur hjá Barna- og fjölskyldustofu segir að samkvæmt nýrri reglugerð beri að meta börnin á þriggja mánaða fresti. Úrræðin verði heimili barnanna þar sem þeim verði kennt og unnið með þau og að markmið og áætlanir fyrir hvert barn þurfi að vera skýr.
„Þannig að við getum í raun og veru komið þeim heim til sín eða inn í fóstur,“ segir Eiríkur.
Markmiðið sé alltaf að börnin snúi aftur í eðlilegra líf, sé þess kostur.
Eiríkur telur að búsetuúrræði Barna- og fjölskyldustofu verði um margt frábrugðin þeim einkareknu.
„Kostnaðarlega verðum við ódýrari. Við verðum líka með meira af fagfólki inni í kerfinu okkar og inni í búsetuúrræðunum.“
Samkvæmt upplýsingum frá mennta- og barnamálaráðuneytinu er kostnaður ríkisins vegna vistunar barna með fjölþættan vanda í einkaúrræðum á þessu ári rúmlega 2,8 milljarðar króna. Ráðuneytið segir það svara vistun 20 barna.
Sveitarfélögin hafa þó áfram greitt fjárhæðir með hverju barni sem svara meðlagsgreiðslum. Ríki og sveitarfélög hafa deilt um það hvaða börn eigi að falla undir þessa yfirfærslu – og hver ekki.
Hvað kostar eitt barn í búsetuúrræði?
En hvað ætli það kosti að vista barn með fjölþættan vanda utan heimilis síns?
Samkvæmt svörum frá einu meðalstóru sveitarfélagi á landsbyggðinni segir að sveitarfélagið hafi nýverið fengið tilboð frá einu af búsetuúrræðunum sem hljóðar upp á rúmar 15 milljónir króna á mánuði vegna búsetu og tæpa milljón vegna skóla, alls 16 milljónir króna á mánuði vegna barns sem glímir við fjölþættan vanda.
Eiríkur hjá Barna- og fjölskyldustofu segir marga samverkandi þætti geta haft áhrif á verðmiðann hjá einkareknu úrræðunum.
„Þegar eftirspurnin verður líka svona mikil eins og hún er búin að vera á síðustu árum varðandi það að setja börn í úrræði utan síns sveitarfélags eða utan síns nærumhverfis, þá þarftu að vinna hlutina hratt, þú þarft að setja úrræði upp hratt og þetta kostar. Þannig að ég held að það sé kannski ekki bara hægt að taka úrræðin og segja að þetta sé svona græðgiskerfi, heldur erum við líka að þrýsta börnum þarna inn og höfum verið að gera það kannski í alltof langan tíma.“
Tekjur og arðgreiðslur
Tekjur virðast þó vera ágætar hjá fólki sem stendur í rekstri í þessum geira. Að minnsta kosti gefa uppflettingar hjá Skattinum til kynna að eigendur Klettabæjar séu hvor um sig með um 45 milljónir króna í árstekjur, eða tæpar fjórar milljónir á mánuði.
Eigendurnir tveir eiga líka fasteignafélagið Björtuborgir, sem á til að mynda fasteignir sem Klettabær notar.
Í skriflegum svörum framkvæmdastjóra Klettabæjar kemur fram að það eigi við um eitt fjölbýlishús með þremur íbúðum. Klettabær greiði fasteignafélaginu leigu upp á 1.650.000 krónur á mánuði fyrir þessar þrjár íbúðir.
Annað stórt félag í sams konar rekstri og Klettabær er búsetuúrræðið Heilindi. Það hefur greitt 55 milljónir króna í arð til eigenda sinna síðastliðin þrjú ár. Eigendur Heilinda eru líka nýbúnir að stofna fasteignafélag. Þá á eigandi Vinakots líka fasteignafélag.
Það eru sem sagt háar fjárhæðir í spilinu þegar kemur að umönnun barna. Sem fyrr segir hefur einkareknu úrræðunum fjölgað hratt á meðan lítið hefur verið í boði hjá hinu opinbera. Þessi úrræði eru þó alls ekki öll með jafn umfangsmikla starfsemi og til dæmis Klettabær.
Vopnabúrið
Vopnabúrið er eitt þessara úrræða og var stofnað 2021 sem virkniúrræði fyrir börn í vanda. Í desember 2024 bættist við búsetuúrræði. Við það tífaldaðist veltan.
Hjónin Björn Már Sveinbjörnsson Brink og Tinna Dahl Christiansen eru eigendur Vopnabúrsins. Björn var áður lögreglumaður en er í dag menntaður sem félagsráðgjafi.
Bruni í leyfislausu úrræði
Í fyrrahaust kviknaði í íbúð í Sóleyjarhlíð í Hafnarfirði þar sem Vopnabúrið vistaði sextán ára dreng. Samkvæmt gögnum frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála varð drengurinn valdur að brunanum með rafsígarettu. Tveir starfsmenn voru á vakt.
Vopnabúrið hafði sótt um leyfi hjá Gæða- og eftirlitsstofnun til að vista barn í íbúðinni en var ekki komið með það þegar það kviknaði í.
Barn á baunapoka
Eigendur Vopnabúrsins afþökkuðu viðtal við Kveik. Kveikur hefur rætt við nokkra fyrrverandi og núverandi starfsmenn úrræðisins. Fæstir voru tilbúnir til að veita viðtal. Samkvæmt gögnum frá sveitarfélögum hafa tvö börn verið vistuð í Vopnabúrinu undanfarið. Þriðja barnið bættist svo við tímabundið.
Daníel og Stefán unnu báðir í Vopnabúrinu nýlega. Nöfnin eru dulnefni. Þeir vildu ekki koma fram undir réttum nöfnum og sögðust óttast afleiðingarnar.
Þeir lýsa því að þriðja barnið hafi komið í búsetuúrræðið í miklum flýti.
„Og átti að sofa á loftdýnu, inni í golfhermi,“ segir Stefán.
„Eigandinn er með svona golfhermi inni í þessu atvinnuhúsnæði,“ útskýrir Stefán. „En strákurinn vildi frekar sofa á baunapoka sem hann var með þarna frammi. Þannig að það voru settir tveir baunapokar þarna inn og það er líka myndavél inni í þessu herbergi, í horninu, sem beinir beint á golfherminn og skjólstæðingurinn er þar í miðjunni. Og þessi yfirmaður er mjög duglegur að kíkja í myndavélarnar.“
Þeir segja að barnið hafi sofið þarna þann tíma sem það dvaldi í Vopnabúrinu, sem hafi ekki verið mikið meira en tvær vikur.
Á hvaða aldri var þetta barn?
„Hann er undir tíu,“ segir Stefán.
Undir tíu ára?
„Já.“
Stefán segist sjálfur hafa verið settur á vaktir með barninu. Þar af leiðandi hafi hann séð aðstæður með eigin augum.
Hvað fannst þér um þetta?
„Bara hræðilegt, þú veist, af hverju gat hann ekki bara stokkið í IKEA og keypt rúm? Þau fá fullt af pening og það kostar ekki það mikið.“
Oft einn á vakt með dreng sem átti að hafa tvo
Andri Már vann líka í Vopnabúrinu um tíma áður en hann stofnaði Birtuhlíð. Hann segist hafa byrjað þar á meðan hann vann enn þá sem hópstjóri á Stuðlum.
„Ástæðan fyrir því að ég fer þarna inn er af því að ég þekkti drenginn sem var vistaður þarna. Ég hafði myndað mikil og sterk tengsl við hann í gegnum Stuðla.“
Hann segir að oft hafi eigandi Vopnabúrsins aðeins sett einn starfsmann á vakt með drenginn þrátt fyrir að þjónustusamningur hans hafi hljóðað upp á tvo starfsmenn.
„Við reyndum ítrekað að fá hann til að borga okkur auka fyrir þær vaktir sem við vorum einir með hann. Hann tók það aldrei í mál en þar kemur gífurlegur sparnaður.“
Starfsmaður með grófa ofbeldisdóma
Fyrrverandi og núverandi starfsmenn Vopnabúrsins hafa í samtölum við Kveik talað um að hafa ýmist orðið vitni að eða heyrt um umgengni skjólstæðings í búsetuúrræðinu við mann sem er með nokkurn fjölda dóma á bakinu, meðal annars fyrir alvarlega ofbeldisglæpi.
Andri Már er einn þeirra.
„Þegar ég vann á Stuðlum þá var þessi umgengni, úrræðið var við hliðina hjá okkur, og það var maður með dóma að vinna þar.“
Hver var það?
„Börkur heitir hann, já. Börkur Birgisson.“
Þetta rímar við frásagnir fleiri starfsmanna. Samkvæmt upplýsingum frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála var Vopnabúrið fyrst með bráðabirgðaleyfi til að vista barn í húsnæði Barna- og fjölskyldustofu hjá Stuðlum.
„Við starfsfólkið á Stuðlum náttúrulega könnuðumst við hann, sáum hann koma og fara af vöktum. Þau notuðu sameiginlegt bílastæði og við. Og svo get ég líka bara sagt þér það að þessi strákur sem hann vann hjá talaði ítrekað um hann eftir að ég byrjaði að vinna þar,“ segir Andri Már.
„En bara til þess að það komi alveg hreint fram þá hafði hann ekkert nema gott um hann að segja. Hann kom vel fram við barnið og greinilega vandaði sig í því sem hann var að gera. En það er mjög skýrt að í svona starfi má ekki ráða fólk með grófa dóma, þannig að þetta sló okkur svolítið.“
Barnavernd Reykjavíkur gerði athugasemd við Vopnabúrið
Þegar Kveikur spurði hvort Barnavernd Reykjavíkur hefði haft afskipti af búsetuúrræði sagði Þyrí Halla að það hefði ekki verið, það er að segja ekki gagnvart þeim úrræðum sem börn frá Reykjavík eru í búsetu hjá.
„Það var gagnvart einu úrræði sem heitir Vopnabúrið sem við höfum notað sem svona dagþjónustu, svona virkniúrræði. Þá kom það upp að þar var starfsmaður sem hafði sakaskrá og við gerðum athugasemd við það og það var brugðist við því.“
Með alvarlega dóma þá?
„Hann var með alvarlega dóma á sinni sakaskrá, já.“
Andri Már er reyndar sjálfur með dóma á bakinu. Hann hefur til að mynda gerst sekur um ítrekaðan akstur eftir að hafa verið sviptur ökuréttindum, hraðakstur, vörslu fíkniefna, akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna, fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot.
Aðspurður hvar mörkin liggi hvað þetta varðar segist hann í raun ekki hafa búist við því að fá tækifæri til að sinna störfum sem þessum.
„En ég aftur á móti hef aldrei verið dæmdur fyrir neitt ofbeldi. Mín brot eru bara, hvað á ég að segja, væg neyslubrot. Þó það sé alls ekki vægt að keyra undir áhrifum, keyra próflaus og varsla fíkniefna. Núna bara eftir nokkra daga er ég að fagna níu ára edrúafmæli.“
Í desember 2012 fékk Börkur Birgisson sex ára fangelsisdóm fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, ólögmæta nauðung og fleiri brot. Dómurinn var staðfestur fyrir Hæstarétti í október 2013.
Kveikur hafði samband við Börk en hann vildi ekki láta hafa neitt eftir sér.
Umtalsverður hagnaður og tækjakostur Vopnabúrsins
Vopnabúrið hefur umsjón með lífi tveggja barna og fyrsta árið eftir að fyrirtækið byrjaði með búsetuúrræði, 2025, voru rekstrartekjur þess rúmar 277 milljónir króna.
Þetta sama ár var rekstrarhagnaðurinn fyrir afskriftir og fjármagnsgjöld tæpar 90 milljónir króna en hagnaðurinn var tæpar 70 milljónir króna.
Vopnabúrið á ýmist eða hefur til umráða í gegnum rekstrarleigu fjögur torfæruhjól, fjórhjól, buggybíl, tækjakerru, Smart 3-rafmagnsbíl, nýlegan Volvo XC90-jeppa og Triumph-mótorhjól.
„Ég er einn á vakt með drenginn og [eigandinn] kemur á glænýju mótorhjóli. Mótorhjól sem er rándýrt og hann sagði mér meira að segja hvað það kostaði. Blikkaði mig og sagði bara: „Bissness is gúdd,““ segir Andri Már og talar um að þetta hafi komið illa við starfsmenn á sínum tíma.
„Því við vorum alltaf einir með [skjólstæðinginn] að reyna að fá nokkra þúsundkalla ofan á taxtann okkar sem væri samt sparnaður fyrir hann því hann er ekki að borga tvöföld laun.“
Í erindi Kveiks til Vopnabúrsins var meðal annars spurt um tækjakost fyrirtækisins en þeirri fyrirspurn var ekki svarað.
Andri Már segir að ýmiss konar sparnaður í Vopnabúrinu hafi komið honum spánskt fyrir sjónir.
„Það er sparað á ótrúlegustu stöðum, matarinnkaupum og húsgögnum og það var farið að ná í frí húsgögn í Góða hirðinum, sem er ekki eitthvað sem er partur af svona þjónustusamningi. Allavega var það skýrt í þeim samningum sem við gerðum að partur af samningnum fer í þennan kostnað að halda heimilinu en hann var einhvern veginn búinn að finna út úr því hvernig hann ætti að fá fría hluti alls staðar og þetta var ofboðslega sorglegt að koma inn í þessar íbúðir. Þetta passaði ekkert saman og enginn svona heimilisbragur yfir þessu.“
Stara út í loftið
Þeir Stefán og Daníel eru á sama máli um það hvort verið sé að hjálpa skjólstæðingum Vopnabúrsins út í lífið með einhverjum hætti.
„Alls ekki,“ segir Stefán.
Daníel tekur í sama streng.
„Þetta er rosa mikil geymsla bara.“
Stefán segir að skjólstæðingur í Vopnabúrinu hafi verið í mikilli vanvirkni þegar hann vann þar.
„Það var eiginlega þannig alla daga. Allir dagar bara, sitja í íbúðinni allan daginn, stara út í loftið, hann að blasta tónlist og bara sitja þarna. Svo stundum vildi hann fara út á rúntinn en svo mátti það ekki lengur, til að spara bensín.“
Viðvaranir til barnaverndar
Annað barnið sem er vistað í Vopnabúrinu er á vegum Suðurnesjabæjar. Kveikur hefur undir höndum tvö bréf sem fyrrverandi starfsmenn Vopnabúrsins sendu barnavernd sveitarfélagsins í mars, þar sem varað er við starfsemi Vopnabúrsins.
Þar segir meðal annars að barn hafi oft verið skilið eftir með einum starfsmanni. Talað er um skort á öryggi, til dæmis vegna starfsmanna sem ráði illa við starfið og ráði ekki við skjólstæðing sem hafi sýnt af sér ofbeldishegðun. Svo eru gerðar alvarlegar athugasemdir við notkun á fjármagni og sendendur tala um slæma framkomu í garð starfsfólks, svo fátt eitt sé nefnt.
Stefán segist sjálfur hafa rætt við Barnavernd Suðurnesjabæjar. Daníel segist hafa orðið vitni að símtalinu.
„Þá voru þau svolítið að humma þetta fram af sér af því að ríkið væri að fara að taka við þessu. Þannig að þau voru svona: „Við bíðum bara eftir að þetta líði hjá.“ Mér fannst allavega símtalið vera þannig. Okkur fannst þetta fara svolítið í „I don’t give a fuck“-möppuna,“ segir Daníel.
„Svo fékk hann endurnýjaðan samning frá þeim bara stuttu síðar,“ segir Stefán.
Kveikur bað um viðtal við teymisstjóra barnaverndar Suðurnesjabæjar. Hann sagðist afþakka þátttöku að þessu sinni og bar fyrir sig persónuvernd skjólstæðinga.
Sviðsstjóri velferðarsviðs Suðurnesjabæjar segir í svari við skriflegri fyrirspurn að ábendingar og kvartanir vegna þjónustu við börn séu teknar alvarlega. Þá fái tilkynnandi ekki upplýsingar um einstakar aðgerðir og því sé það ekki til marks um það hvort eða hvernig brugðist hafi verið við tilkynningunni.
Upplýsingar fyrrverandi starfsmanna kunni að gefa „skakka mynd“
Sem fyrr segir höfnuðu eigendur Vopnabúrsins viðtali við Kveik. Ásakanir voru bornar undir eigendurna en þeim var almennt ekki svarað efnislega. Björn Már Sveinbjörnsson Brink, annar eigenda, segir í skriflegum svörum að þeim sé þröngur stakkur sniðinn vegna ríkrar trúnaðar- og þagnarskyldu í starfseminni. Hætta sé á að svör kunni að gefa upp persónugreinanlegar upplýsingar.
Björn segir að einstaka starfsmenn hafi „því miður horfið frá störfum án þess að sátt hafi hlotist um einstaka atriði við starfslok“. Því kunni upplýsingar frá fyrrverandi starfsmönnum að „gefa skakka, og jafnvel ranga mynd, af starfsemi úrræðisins vegna hagsmunaárekstra“.
Þá segir Björn að úrræðið leggi áherslu á að sinna þeim skjólstæðingum sem leiti til úrræðisins á hverjum tíma með sem bestum hætti og fylgja skráðum og óskráðum reglum í kjarnastarfsemi sinni.
Eitt af því sem Kveikur bar undir eigendurna var ráðning starfsmanns með sögu um alvarlega ofbeldisglæpi. Í svörunum segir eftirfarandi:
„Undirritaður kann ekki við að nafngreina aðila er kunna að hafa starfað eða liðsinnt úrræðinu í gegnum tíðina. Þess ber þó að geta að úrræðið hefur ávallt fylgt settum reglum þegar kemur að ráðningu starfsfólks eða annarra er vilja leggja hönd á plóg við starfsemi úrræðisins.“
Árásir á starfsfólk
Víkjum aftur að Arnari Atla Björnssyni. Hann hélt áfram að beita ofbeldi eftir að hann flutti að heiman og í búsetuúrræði. Þegar hann var í Vinakoti um 16 ára aldur réðst hann á tvær starfskonur sem voru á vakt hjá honum.
Sigrún amma hans rifjar upp þegar hann sagði henni frá aðdraganda árásarinnar.
„Hann segir mér að hann komi fram og sjái þar fram í stofu að þar séu tvær konur og hugsi þá um leið að hann muni ráða við þær og þá hafi hann ráðist á þær. Hann nær annarri niður og hin frýs.“
Hún segir að konan hafi legið á spítala einhverja daga á eftir.
„Þannig að þetta var fólskuleg árás.“
Arnar Atli er langt í frá eina barnið með fjölþættan vanda sem hefur sýnt af sér ofbeldi.
Þær Birta og Erla Rós segja að ofbeldi hafi komið reglulega upp í Klettabæ á meðan þær unnu þar. Skjólstæðingur beitti Birtu ofbeldi þegar þær Erla Rós voru saman á vakt í vetur. Þeim fannst yfirmenn þeirra í Klettabæ taka atvikinu fálega.
„Á fundi sem ég fór á með stjórnendum eftir atvikið kom fram að það hefði ekki komið neinum á óvart að þetta ofbeldi hafi átt sér stað og það í raun benti margt til þess,“ segir Birta.
Þær furða sig báðar á því að þess hafi ekki verið gætt að hafa bæði karlmann og konu á vakt hjá skjólstæðingnum, sérstaklega þar sem það hafi verið vitað að það gæti stefnt í ofbeldishegðun.
Stuttu síðar lenti Erla Rós í öðrum ógnandi aðstæðum á vakt. Eftir fundinn með stjórnendum var hún óviss um hvernig hún ætti að bregðast við og treysti til dæmis ekki á stuðning og bakland stjórnenda.
„Ég þori ekki að segja nei og ég þori ekki að taka slaginn,“ segir Erla Rós.
„Af hverju ætti ég að fara að leggja mitt öryggi í hættu við að fara að setja fótinn niður við einhverja hegðun ef það mun ekki gera neitt?“
„Engar afleiðingar fyrir mig“
Erla Rós og Birta, og aðrir fyrrverandi starfsmenn hjá Klettabæ, lýsa fleiri ofbeldistilvikum, sumum mjög alvarlegum. Ýmsir hafa nefnt skort á stuðningi stjórnenda Klettabæjar og að skjólstæðingar hafi verið meðvitaðir um skort á afleiðingum.
Erla Rós segir það síðarnefnda hafa verið augljóst af hegðun skjólstæðingsins sem réðst á Birtu að dæma.
„Segir svona eiginlega: „Það eru engar afleiðingar fyrir mig, ég má gera það sem ég vil. Þetta er mitt hús, þið eruð bara að vinna fyrir mig.““
Erla Rós og Birta hættu báðar störfum hjá Klettabæ fljótlega eftir þetta.
„Frá því að ég lenti í mínu fyrsta atviki og þar til ég síðan hætti þá var ég meðal annars lamin, ég var klóruð til blóðs, ég var bitin og það var rifið í hárið á mér. Það var sparkað í mig. Mér var ógnað með múrsteini, skóflu og skærum, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Birta.
Erla Rós gefur ekki mikið fyrir hugmyndir um að börn og aðrir í úrræðum sem þessum mæti ekki einhvers konar afleiðingum gjörða sinna. Afleiðingar þurfi að hennar mati alls ekki að vera alvarlegar en að fólk verði að læra hvernig lífið virki og að gjörðum fylgi ábyrgð.
„Það getur alveg eitthvað ræst úr þessum krökkum og þau skilja alveg afleiðingar.“
Dóttir Íseyjar er, að sögn móður hennar, ekki ofbeldisfull í dag en hún segir hana þó hafa sýnt af sér ofbeldi áður.
„Það hefur verið aðallega gagnvart mér en hefur verið líka gagnvart starfsmönnum.“
Í Klettabæ?
„Já.“
Sat af sér dóm í Klettabæ
Arnar Atli hlaut refsidóm fyrir árásina á starfskonurnar í Vinakoti á sínum tíma. Sigrún segir að hann hafi síðan fengið að sitja dóminn af sér í Klettabæ.
„Þá er bætt í starfsmannafjöldann, þá eru þeir þrír, þeir voru tveir áður, þá voru þrír með honum allan sólarhringinn og hann fékk ekkert að fara eða gera neitt öðruvísi en það væru alltaf þrír starfsmenn með honum. Hann var vaktaður allan sólarhringinn og þurfti að sitja aftur í með barnalæsingu ef það var farið eitthvað.“
Með hné við brjóstkassa og olnboga við háls tíu ára barns
Hegðun dóttur Íseyjar hefur meðal annars verið mætt með svokölluðum inngripum starfsmanna, til dæmis þegar þeim tókst ekki að koma henni inn í bíl að skóladegi loknum, ef miðað er við lýsingar vitna.
„Hún hefur verið tekin í inngrip, hálf í bílbelti inni í bíl, á jörðinni. Liggur einhvern veginn, annar starfsmaður ofan á henni. Verklagið finnst mér bara stundum vera mjög furðulegt,“ segir Ísey.
Þetta átti sér stað þegar dóttir Íseyjar var aðeins tíu ára, fyrir utan Brúarskóla sem hún var í á þeim tíma.
Í tölvupósti frá Brúarskóla sem Kveikur hefur undir höndum segir meðal annars að starfsmaður Klettabæjar hafi legið ofan á stúlkunni, með „hné við brjóstkassa“ hennar og „olnboga við háls“.
„Auk þess var nemandi flæktur í bílbelti þar sem hún lá á götunni,“ segir í póstinum.
Starfsmenn Brúarskóla hafi náð að róa stúlkuna þannig að „hún fór á endanum inn í bílinn“.
„Starfsmönnum Brúarskóla var brugðið við að sjá handbrögðin.“
„Ég næ ykkur“
Í fyrra, þegar stúlkan var þrettán ára, tók dagur hennar í Klettabæ óvænta stefnu. Þá var hún í íbúð sinni ásamt tveimur starfskonum.
Drengur, sem Ísey segir að stúlkan hafi þekkt nokkru áður, komst á snoðir um heimilisfang hennar í Klettabæ. Samkvæmt Íseyju var drengurinn um tveimur árum eldri og vistaður í öðru búsetuúrræði.
Stúlkan tók sjálf myndskeið af atburðarásinni á símann sinn sem má sjá í þætti Kveiks.
Þar má sjá hvernig drengurinn byrjar á að kýla ítrekað í rúðu í glugga á íbúðinni. Hann fer svo og sækir stein. Starfskonurnar tvær sækja stúlkuna og fara með hana lengra inn í íbúðina þegar mikið högg og brothljóð heyrist. Þær fara allar þrjár inn í herbergi stúlkunnar en við það heyrist annað og öflugra brothljóð. Drengurinn hafði brotið rúðuna með steini.
Starfskonurnar tvær hlaupa ásamt stúlkunni inn á baðherbergi íbúðarinnar og læsa sig þar inni. Þær hringja í lögreglu og skömmu síðar tekur drengurinn til við að reyna að brjóta sér leið inn á baðherbergið. „Ég næ ykkur,“ öskrar hann í gegnum hurðina.
Hurðin gengur inn við ítrekuð högg drengsins og spörk. Á endanum brýtur hann gat á hurðina en skömmu síðar kemur lögregla á staðinn. Hættan er liðin hjá og starfskonurnar og stúlkan fallast í faðma, grátandi. Í myndbandinu sést hvernig hurðin fór ekki aðeins af hjörunum heldur brotnaði hún hreinlega úr gættinni við átökin.
Ísey sýnir fréttamanni Kveiks myndbandið og þegar því lýkur er hún auðsjáanlega í uppnámi.
„Þarna á maður að vera viss um það að barnið manns sé öruggt. Maður á að vera viss um að svona hlutir gerist ekki.“
Börnin í geymslunni
Viðmælendur og heimildarmenn Kveiks notuðu oft sama orð um búsetuúrræðin: geymslur. Ísey er ein þeirra.
„Því miður eru úrræðin geymslur, bara til að hvíla foreldra.“
Hún bendir á mikilvægi þess að fram fari mikil og fagleg vinna með börn í þessari stöðu, eins og dóttur hennar.
„Líkurnar á því að börn eins og hún, með hennar vanda, fari einmitt í það að deyfa sig, í sjálfsskaða eða með fíkniefnum eða áfengi og eitthvað, eru bara gígantískt háar. Út af því að það er ekki verið að grípa þessa krakka. Það er bara verið að kasta þeim hingað og þangað.“
Ekkert óboðað eftirlit
Eiríkur hjá Barna- og fjölskyldustofu segir að stofnunin hafi ekki eftirlitshlutverk gagnvart einkareknum úrræðum.
„En okkur ber skylda til þess, ef við fáum vitneskju um að það sé eitthvað í gangi inni í úrræðunum þá ber okkur að tilkynna það til Gæða- og eftirlitsstofnunar.“
Hafið þið gert það?
„Já, við höfum gert það.“
Andri Már segir að forsvarsmenn Birtuhlíðar hafi lítið orðið þess varir að verið væri að fylgjast með starfsemi þeirra.
„Það var eiginlega að okkar frumkvæði, þar sem við vorum að láta þau vita hvernig gengi. Við lentum aldrei í því að fá neinar óvæntar heimsóknir.“
Hann segir utanumhald og eftirlit, eða skort þar á, hafa komið sér verulega á óvart.
„Mér finnst þetta náttúrulega pínulítið galið. Eins og ég segi þá kostar þessi þjónusta mikinn pening. Þetta eru peningar skattgreiðenda og að sjálfsögðu ætti einhver að vera sem er að passa upp á að þessir peningar séu nýttir almennilega og að það sé ekki verið að eyða þessu bara í eitthvað kjaftæði.“
Þyrí Halla hjá Barnavernd Reykjavíkur segir að það sé ekki farið í óvæntar heimsóknir eða óboðað eftirlit eins og hún orðar það.
„Nei, það er ekki svona óboðað eftirlit. Það felst ekki í því. Þetta eru bara fyrir fram ákveðnir fundir og viðtöl, heimsóknir og slíkt.“
Erfið leið Arnars Atla eftir Klettabæ
Börn sem eru vistuð í búsetuúrræðum af þessu tagi verða á endanum fullorðin. Fyrir þá sem ráða ekki við sjálfstæði á þeim tímapunkti getur eitt og annað tekið við. Sum úrræðanna vista líka fullorðna, eins og Klettabær, en öðrum er ætlað að halda áfram á næsta stað í kerfinu.
Arnar Atli var í Klettabæ fram yfir tvítugt en svo lauk dvöl hans þar og hann hélt út í hið opinbera kerfi. Þar vegnaði honum ekki vel. Hann fór fyrst í úrræði sem átti að aðlaga hann út í samfélagið.
„Honum leið bara mjög illa þarna. Honum fannst starfsfólkið kuldalegt við sig og þetta var eiginlega bara allt byggt á refsingum í staðinn fyrir hvatningu,“ segir Sigrún, amma hans.
Hann velktist um í kerfinu og féll dýpra í vanlíðan, neyslu og sjálfsskaða. Vonir um sterkari einstakling sem gæti tekið virkan þátt í samfélaginu á sinn hátt urðu smátt og smátt að engu. Hann leitaði reglulega á geðdeild og fékk á endanum pláss í búsetukjarna.
„Bara gjör svo vel, hér er bara þín íbúð og nú sérð þú bara um þig sjálfur.“
Sigrún segist ítrekað hafa bent á að úrræðið hentaði honum ekki og að honum væri einungis að hraka.
„Hann var bara orðinn svo einmana.“
Ferðir Arnars Atla á geðdeild urðu tíðari. Þangað fór hann í vor. Þá var sótt um fyrir hann á Kleppi en biðin var löng. Í millitíðinni átti hann að fá þjónustu teymis sem kæmi í vitjanir heim til hans.
„Hann var rosalega spenntur fyrir þessu. Þarna væri loksins eitthvað að fara að gerast og svo gerist ekkert og það líða tvær vikur og þá gefst hann upp.“
Sigrún hafði fengið símtal frá Arnari Atla og óttaðist mjög um hann. Eftir að hafa reynt að fá þjónustu fyrir hann án árangurs hringdi hún að lokum í Neyðarlínuna.
„Og það var bara því miður of seint. Þegar þeir koma þá var enginn púls. Þeir ná að hnoða í hann líf, þannig að hjartað fer að slá aftur og hann er bara fluttur með sjúkrabíl niður á bráðamóttöku.“
Arnar Atli komst aldrei aftur til meðvitundar. Hann hafði svipt sig lífi. Hann lést á Landspítala 19. júní. Amma hans var hjá honum þegar hann lést.
„Hana langar að eignast líf“
Samningur dóttur Íseyjar í Klettabæ rennur út í lok nóvember.
„Hún var ekki metin þannig að hún þyrfti fulla búsetu,“ segir Ísey.
„Hana langar að verða eitthvað. Hana langar að eignast líf og er með fallega drauma en það verður bara að hjálpa henni svo það verði að veruleika.“
Ríkið lofar nýjum búsetuúrræðum um áramót
Í skriflegu svari frá mennta- og barnamálaráðuneytinu segir að markmiðið sé að sett verði á fót sérhæft vistunarúrræði á vegum Barna- og fjölskyldustofu sem komi til með að þjónusta hóp barna með fjölþættar stuðningsþarfir sem fyrst og eigi síðar en frá 1. janúar 2027. Þar af leiðandi hafi samningar við sveitarfélög um vistun barna í einkaúrræðum ekki verið gerðir til lengri tíma en til 31. desember 2026.
Kveikur bað um að sjá úrræðið en það var ekki talið tímabært.
Aðspurður segir Eiríkur hjá Barna- og fjölskyldustofu að enn sé ekki búið að ráðast í grenndarkynningar vegna úrræðanna.
„En það verður gert.“
Hvað tekur slíkt venjulega langan tíma? Hverju eruð þið að gera ráð fyrir?
„Ætli við séum ekki að gera ráð fyrir einhverjum vikum varðandi það að koma þessu í grennd og skipuleggja í kringum slíkt,“ segir hann.
Loforð um úrræði ítrekað ekki verið efnd
Á síðustu árum hafa loforð um úrræði fyrir börn í vanda ítrekað tafist eða ekki verið efnd. Dæmi um það var meðferðarheimili í Mosfellsbæ, þar sem átti að vista fimm börn. Þáverandi barnamálaráðherra opnaði heimilið rétt fyrir kosningar 2024 en það kom þó fljótlega í ljós að heimilið var alls ekki tilbúið og tilskilin leyfi skorti. Það var aldrei opnað. Í staðinn var búsetuúrræðið Blönduhlíð opnað. Þar er hægt að vista þrjú börn. Svo bólar enn ekkert á meðferðarheimili fyrir börn í Garðabæ, sem upphaflega stóð til að hefja framkvæmdir við 2020.
Heldurðu að það sé raunhæft að þetta verði tilbúið í janúar?
„Já, ég held að það sé raunhæft að þetta verði tilbúið í janúar. Þú verður að vera bjartsýnn þegar þú ert að setja svona á fót,“ segir Eiríkur.
„Við eigum öll þessi börn. Samfélagið á þessi börn,“ segir Eiríkur.