Sveinn Reynir Eyjólfsson er látinn 88 ára að aldri. Sveinn var stofnandi DV og einn áhrifamesti frumkvöðull íslenskra fjölmiðla.Sveinn var fæddur í Reykjavík þann 4. maí árið 1938. Hann var stúdent frá Verzlunarskóla Íslands árið 1958, vann í Landsbankanum til 1961 og sem deildarstjóri hjá Skeljungi til 1968. Á sjöunda áratugnum stofnaði hann jafn framt byggingarfélagið Ármannsfell ásamt Ármanni Guðmundssyni og var einn stofnenda Andra hf árið 1967. En síðan hóf Sveinn innreið sína inn í fjölmiðlaheiminn.
Sveinn R. Eyjólfsson er látinn – Einn áhrifamesti frumkvöðull íslenskra fjölmiðla