Í tilkynningu frá lögreglu þess efnis segir að aðgerðin hafi staðið yfir í sjö og hálfa klukkustund og fól meðal annars í sér að tveir leitarmenn sigu niður í sprunguna og framkvæmdu sjónskoðun og leit með rústabjörgunarmyndavélum og ljósum.
Sjá einnig: Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun
„Við leitina fundust engar vísbendingar sem varpað gætu ljósi á hvar líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar er að finna.“
Lúðvík Pétursson lést þegar hann féll í sprungu í Hópshverfi í Grindavík í janúar árið 2024. Þriggja daga leit fór fram eftir að hann hvarf, sem var að endingu blásin af vegna erfiðra og hættulegra aðstæðna á vettvangi.
Með leitaraðgerð dagsins hafi þeim aðgerðum verið lokið sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum telji unnt að ráðast í á grundvelli fyrirliggjandi áhættumats. Aðrar aðgerðir sem horft hafi verið til þyki of áhættusamar. Ekki verði því ráðist í frekari leitaraðgerðir og er formlegri leit lögreglu því lokið.
Vettvangsstjórn var virkjuð vegna aðgerðarinnar undir stjórn embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum. Að leitinni komu sérfræðingar frá sérsveit ríkislögreglustjóra, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Sigmönnum ehf. og rústabjörgunarhópi Hjálparsveitar skáta í Kópavogi.
Ekki verði veittar frekari upplýsingar um málið.