Arion banki og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér sátt vegna brota Arion banka á ákvæðum reglugerðar um markaðssvik. Fjármálaeftirlit Seðlabankans hóf athugun á meintri markaðsmisnotkun viðskiptavinar bankans í apríl 2024 og í ljós kom að sá hinn sami hafði ítrekað greint starfsmönnum Arion banka frá því að tilgangur viðskipta hans með hlutabréf í Fly Play og Solid Clouds væri að hækka verðið.
Þannig hafi Arion banki brotið gegn reglugerð um markaðsmisnotkun og lögum um markaði fyrir fjármálagerninga með því að hafa látið líða hjá að tilkynna Fjármálaeftirlitinu um viðskipti sem gætu hafa falið í sér markaðsmisnotkun þrátt fyrir að réttmætur grunur hefði átt að liggja fyrir, og hins vegar með því að hafa ekki komið á skilvirku fyrirkomulagi og verklagi til að greina og tilkynna grunsamleg fyrirmæli og viðskipti.
Seðlabankinn birti ákvörðun sína í máli mannsins og sáttina við Arion banka í dag. Í ákvörðuninni í máli mannsins segir að hann hafi ítrekað átt viðskipti með bréf í Fly Play og Solid Clouds við opnun og lokun markaða og þannig haft áhrif á opnunar- og dagslokaverð.
„Slík viðskipti geta gefið öðrum fjárfestum villandi mynd af raunverulegri eftirspurn eftir hlutabréfum og verði þeirra,“ segir í ákvörðuninni. Með hliðsjón af fjárhagsstöðu mannsins gerði Seðlabankinn honum að greiða 100 þúsund krónur í stjórnvaldssekt.
Víðtækur kerfislægur vandi hjá einum umsvifamesta viðskiptabankanum
Í sátt Fjármálaeftirlitsins og Arion banka segir að hinn mikli fjöldi og eðli tilvika þar sem maðurinn greindi starfsmönnum Arion banka frá því að tilgangur viðskipta hans væri að hækka verð fjármálagerðninga bendi til víðtæks kerfislægs vanda hjá Arion banka.
Fjöldi sérhæfðra starfsmanna hafi komið að viðskiptum mannsins. Arion banki sé einn stærsti og umsvifamesti aðilinn á íslenskum verðbréfamarkaði og ríkar kröfur verði að gera til hans um að tryggja að starfsmenn þekki og framfylgi skyldum.
Samkvæmt lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum geta sektir vegna brota á reglum um markaðssvik numið allt að 2% af heildarársveltu og sektir vegna brota gegn lögum um um markaði fyrir fjármálagerninga allt að 10% af heildarveltu.
„Með hliðsjón af framangreindu, eðli og umfangi brota, sjónarmiðum málsaðila, heildarveltu málsaðila m.v. ársreikning hans fyrir árið 2023, atvikum máls að öðru leyti og að teknu tilliti til þess að málinu er lokið með sátt, er málsaðila hér með boðið að ljúka málinu með sátt og til greiðslu sektar að fjárhæð 280.000.000 kr. til ríkissjóðs.“