Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, sem nú situr þing Norðurlandaráðs í Helsinki, gerir ekki athugasemdir við tilhögun símtals forsætisráðherra Noregs og forseta Finnlands við Pútín.
Þeir ræddu við Pútín í síma í morgun um diplómatískar leiðir til að enda stríðið. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur efasemdir um að þetta hafi verið réttu vinnubrögðin, Norðurlöndin eigi að tala einni röddu.
Kristrún gerir ekki athugasemdir við afstöðu forsætisráðherra Danmerkur. Ef þessir tveir menn hafi traust Úkraínuforseta í verkefnið þá verði að vilja þann vilja, það sé aðalmálið, segir Kristrún.
„Ég ræddi bæði við forsætisráðherra Noregs og forseta Finnlands í morgun. Við áttum auðvitað að eiga fund á öðrum forsendum í byrjun og frétti svo sem af þessu símtali rétt áður en af því varð. Ég geri ekki athugasemdir við tilhögun þessa símtals, ég geri mér alveg grein fyrir að það kann að vera að fólk hafi skoðanir á fyrirkomulaginu, að einhver annar frá Evrópu hefði átt að leiða slíkt samtal eða hvernig svo sem það er. Staðreyndin er sú að ef þessir tveir aðilar hafa traust Úkraínuforseta til að hringja í Pútín, hljótum við að þurfa að horfa á vilja Úkraínumanna í þessu samhengi,“ segir forsætisráðherra.
Aðalmálið sé að sama hvað persónum og leikendum finnist um það hver hafi samband við hvern þá séu það Úkraínumenn og Úkraínuforseti sem ráði för þegar komi að baráttunni um land þeirra, segir Kristrún.