Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur skrifar:Um daginn hitti ég konu sem var öll í keng. Henni var svo óglatt að hún gat varla staðið upprétt. Ég spurði hvort hún væri með magapest eða slæma magakrampa.Svarið kom stutt og hnitmiðað, meira að segja með örlitlum ánægjuhreim:„Nei, Beta mín, ég er að sprauta mig!“Einmitt það! Þá áttaði ég mig á því að hún var að tala um þyngdarstjórnunarlyf.„En er þetta virkilega þess virði?“ spurði ég.„Já, ég nenni ekki að vera svona,“ svaraði hún ákveðin.
Beta Reynis: Er allt gott svo lengi sem við erum mjó?