Spangólandi postulínsstyttur
Þorvaldur Sigurbjörn Helgason skrifar um Púðlusafnið, sviðslistaverk eftir Olgu Sonju Thorarensen og Salóme Sól Norðkvist, sem sýnt er í Tjarnarbíói.
Hvað gerir maður við allt draslið sem maður erfir frá afa og ömmu að þeim liðnum? Svarið er einfalt: annaðhvort fer maður með það í Sorpu eða maður gerir sviðslistaverk úr því! Systurnar Olga Sonja Thorarensen og Salóme Sól Norðkvist völdu síðarnefnda kostinn og í tilraun til þess að gera upp fjölskyldusögu sína og skilja ástæður þess að amma þeirra safnaði yfir 200 postulínsstyttum af púðluhundum, hafa þær samið sviðslistaverkið Púðlusafnið sem var frumsýnt í Tjarnarbíói síðastliðna helgi.
Valin kona í hverju rúmi
Að sýningunni kemur einvalalið sviðslistakvenna en athygli vekur að einungis konur koma að gerð Púðlusafnsins. Leikstjórar eru Kara Hergils Valdimarsdóttir og Andrea Elín Vilhjálmsdóttir. Kara hefur hingað til aðallega starfað sem pródúsent í sjálfstæðu sviðslistasenunni og sýnir nú á sér nýja hlið sem leikstjóri en Andrea Elín hefur komið víða við bæði í stofnanaleikhúsunum og sjálfstæðu senunni. Ásrún Magnúsdóttir, sem hefur gert garðinn frægan …