Sveinn R. Eyjólfsson, einn stofnandi fjölmiðlanna Vísis.is, Fréttablaðsins, DV og Dagblaðsins, er látinn, 88 ára að aldri.
Hann lést á Landspítalanum laugardaginn síðastliðinn eftir skammvinn veikindi. Vísir greinir frá.
Hann lætur eftir sig eiginkonu sína, Auði Eydal, börn þeirra, Hrafnhildi, Eyjólf, Hlédísi, Svein Friðrik og Halldór Tinna, og ellefu barnabörn.
Sveinn fæddist í Reykjavík 4. maí 1938. Hann var ráðinn framkvæmdastjóri dagblaðsins Vísis árið 1968. Þar vann hann með Jónasi Kristjánssyni ritstjóra. Saman stofnuðu þeir svo Dagblaðið sem kom fyrst út 8. september 1975.
Þegar Dagblaðið og Vísir sameinuðust árið 1981 í DV gaf Sveinn blaðið út sem stjórnarformaður og útgáfustjóri Frjálsrar fjölmiðlunar. Sveinn gaf út vefmiðilinn Vísi árið 1998 ásamt syni sínum og Fréttablaðið árið 2001.