Fjárfestingar gagnaveranna hafa mikil áhrif á allar hagtölur. Í greiningu Óskars Hrafnssonar, hjá Greiningu Íslandsbanka, sem kom út í dag kemur fram að gagnaverin hafi staðið undir öllum vexti í útflutningstekjum Íslands á fyrri hluta ársins – og nánast öllum fjárfestingum fyrirtækja líka. Þar sem gagnaverin eru að mestu í erlendri eigu skili þau þó minna til landsmanna en stóru tölurnar gefi til kynna.
280 bein störf – tæplega 1.300 óbein störf
Samtök iðnaðarins fjölluðu líka um gagnaverin í greiningu sem þau gáfu út í vikunni. Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur samtakanna, bendir á að horfur séu á að útflutningstekjur gagnaveranna og tengdrar starfsemi verði um 72 milljarðar króna á þessu ári, samanborið við rúmlega 41 milljarð króna í fyrra. Efnahagslegu áhrifin séu umtalsverð en við bætist fjárfesting gagnaveranna upp á 57 milljarða króna á þessu ári, næstum tvöfalt meira en í fyrra. „Þannig að hin efnahagslegu áhrif starfseminnar eru annars vegar frá verulegum vexti í útflutningi og hins vegar frá verulegum vexti í fjárfestingum,“ segir hann.
Ingólfur bendir á að alls starfi 280 hjá fyrirtækjunum þremur en að auki skapi starfsemin hátt í 1.300 önnur störf sem séu meðal annars á sviði iðnaðar, tækni og hátækni. Gagnaverin eru orkufrek, eins og fjallað var um í Speglinum í gær, en Ingólfur segir að sé litið til fjölda starfa miðað við orkunotkun þyki það hlutfall býsna hátt. Störfin eru víða um land en gagnaverin starfa á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjanesbæ, á Akureyri og á Blönduósi.
Eins og fyrr segir eru áætlaðar útflutningstekjur vegna gagnavera rúmlega 70 milljarðar á þessu ári en alls námu útflutningstekjur Íslands um 1.900 milljörðum í fyrra. Ingólfur segir að áætlaðar tekjur gagnaveranna skiptist nokkuð jafnt á milli þeirra sjálfra annars vegar og viðskiptavina þeirra hins vegar.
Misjafnt eftir útflutningsgreinum hversu mikið verður eftir
Gagnaverin eru að mestu leyti í eigu erlendra aðila og viðskiptavinir þeirra eru erlend fyrirtæki. Ingólfur er því spurður að því hversu stór hluti teknanna verði eftir á Íslandi og hvar hagnaðurinn verði til. Hann segir að meðal annars séu þetta laun þeirra sem starfa við iðnaðinn, en þau séu bæði mörg og vel launuð, sem munaði um í atvinnuleysi og litlum hagvexti. „Þessu til viðbótar greiða þessi fyrirtæki skatta, fasteignaskatta og annað slíkt sem skilar sér inn í samneysluna hjá okkur,“ segir hann. Launatengdir skattar og gjöld renni líka til samfélagsins.
En eru útflutningstekjur allar eins? Eru sömu áhrif af útflutningstekjum sem verða til annars vegar, til dæmis ef fiskur er veiddur hér við land, verkaður og fluttur út – og hins vegar af útflutningi gagnavera?
„Nei, það er það ekki. Það er mismunandi hvað verður eftir í okkar samfélagi. En af þessari starfsemi sjáum við að það er talsvert sem verður eftir. Störfin eru tiltölulega mörg. Skatttekjurnar eru tiltölulega góðar, þó að við höfum ekki reiknað það út nákvæmlega,“ segir hann. Það sé mismunandi eftir útflutningsgreinum hversu stór hluti útflutningstekna verði eftir sem innlendur virðisauki. Þetta sé líka mismunandi frá einum tíma til annars. Í sjávarútvegi hafi störfum til að mynda fækkað og það hafi áhrif á hversu mikið verði eftir hér.
Í fyrrnefndri greiningu Íslandsbanka segir að það sem gagnaverin skilji eftir sé einkum greiðslur fyrir raforku, laun, þjónustu og opinber gjöld – og að þetta geti skilað þjóðarbúinu tugum milljarða króna á ári.
En hvað um hagnaðinn af starfseminni sjálfri? Ingólfur segir að verði hagnaðurinn til á Íslandi verði hann skattlagður hér – en verði hann til erlendis verði hann skattlagður þar og gildir það sama um gagnaverin og til dæmis álverin sem eru í erlendri eigu.
Í greiningu Samtaka iðnaðarins er ekki fjallað um skattspor greinarinnar – en það stendur til. Ingólfur segir þó ljóst að hann sé verulegur.
Mikil aðlögunarhæfni
Hröð uppbygging gagnavera tengist mjög gervigreindinni – og ýmsir hafa viðrað áhyggjur af því að óvíst sé hvort miklar fjárfestingar í gervigreind standi undir sér. En er þá hægt að segja eitthvað til um hversu áhættusamur þessi rekstur er, til dæmis miðað við annan orkufrekan iðnað? Og gæti eftirspurn skyndilega dottið niður – og tæki þá eitthvað annað við?
Ingólfur bendir á að gagnaversiðnaður sé vel heppnað dæmi um hvernig tekist hafi að skjóta fjölbreyttari stoðum undir íslenskt efnahagslíf. Hér áður fyrr hafi allt að 70% af útflutningstekjum landsins komið frá sjávarútvegi. Gagnaverin séu því kærkomin viðbót hvað það varðar. „Síðan hafa þau sýnt það sjálf að í síbreytilegu umhverfi hafa þau verið að færa sig yfir í gervigreind, úr annars konar þjónustu, á síðustu misserum. Þá hafa þau verið að sýna aðlögunarhæfni sína að þeim breytileika sem er í þeirra starfsumhverfi. Út frá því þá hef ég nú ekki áhyggjur af því, litið fram á því, einhverjum breytingum sem verða í þeirra umhverfi. Þau verða tiltölulega snögg að aðlagast því,“ segir Ingólfur.
Gengi krónunnar hefur mikið styrkst
Eins og fyrr segir eru efnahagsleg áhrif gagnaveranna mikil. Í nýlegri greiningu Hafsteins Hafliðasonar, aðalhagfræðings Kviku [upplýsingarnar eru á ensku], er fjallað um möguleg áhrif uppbyggingar gagnavera á gengi krónunnar sem hefur styrkst mjög samhliða stórauknu gjaldeyrisinnflæði frá erlendum aðilum. Hafsteinn telur líklegt að þetta innflæði gjaldeyris tengist fjárfestingum innanlands. Þar megi til dæmis líta til uppbyggingar gagnavera en ekki sé heldur útilokað að það tengist uppgjöri skattaskuldbindinga vegna Kerecis.
Ingólfur segir ýmsar ástæður fyrir því hversu hátt raungengið sé og að framlag gagnaveranna sé bara hluti af því púsli.