„Á meðan ég var í flugi fékk ég fundarboð, sem ég eðlilega sá ekki, og í rúllustiga á flugvelli á leið í lest fékk ég uppsagnarbréf frá Reykjavíkurborg á ísland punktur is,“ skrifar Hildur í Facebook-færslu. Hún sem starfaði sem verkefnastjóri kosninga á skrifstofu borgarstjórnar.
Í morgun hafi hún setið á Keflavíkurflugvelli á leið sinni heim úr fjögurra daga ferð og séð fréttir um „leynifund“ í Ráðhúsinu. Hún hafi sent á skrifstofuna og spurt hvað væri í gangi en engin svör hafi borist fyrr en henni barst póstur frá yfirmanni sínum um að henni byðist sálfræðiaðstoð en enn væri óskað eftir frekara vinnuframlagi hennar.
„Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja. Átján og hálft ár. Ég hef sinnt starfinu mínu af svo ógeðslega mikilli samviskusemi og metnaði að stundum hefur mér fundist ég ganga alltof langt og fram af sjálfri mér,“ skrifar Hildur.
„Mér hefði þótt örlítið meiri sómi af því að kannski þakka mér fyrir þessa tæpu tvo áratugi eða... eða bara eitthvað. En svona er þetta.“
„Lélegasta afmælisgjöf allra tíma“
Ólympíufaranum Inga Þór Jónssyni var sagt upp störfum í dag og greindi frá starfslokunum á Facebook.
„Lélegasta afmælisgjöf allra tíma, rekinn úr starfi hjá Reykjavíkurborg frá og með 1.1,“ skrifar hann.
Hann starfaði sem verkefnastjóri viðburða og markaðs hjá Fjölskyldugarðinum. Starfið í Fjölskyldugarðinum er ekki það fyrsta sem Ingi sinnir hjá borginni en hann var viðburðastjóri í Ráðhúsinu og vann á skrifstofu borgarstjóra í tíð Jóns Gnarr.