„Það er ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. „Það er fullt af fólki sem á um sárt að binda í dag. Þetta er erfiður dagur.“
50 starfsmenn Reykjavíkurborgar fengu uppsagnarbréf í dag, í þriðju uppsagnarhrinu nýs meirihluta. Borgarstjóri segir frekari hópuppsagna ekki að vænta.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Pétur Marteinsson voru gestir Kastljóss.
Viðmið borgarstjórnarinnar er að hlutfall stöðugilda í miðlægri starfsemi Reykjavíkurborgar eigi að vera 7,5% af heildarstöðugildum. Hildur segir viðmiðið byggt á greiningu og samanburði við erlendar borgir þar sem hlutfall miðlægrar stjórnsýslu sé á bilinu 5 til 10%.
Uppsagnirnar feli í sér hagræðingu sem nemi 2,3 milljörðum króna á ársgrundvelli.
Pétur segir viðmiðið tekið úr lausu lofti. „Það er eitthvað verið að skoða til Skandinavíu og annarra landa en það er bara ekki sambærilegt.“
Hann segir of mikinn asa í kringum hagræðingar borgarinnar. „Það má íhuga þetta betur og vanda sig.“
Töluverður munur sé samt sem áður á uppsögnunum í dag og síðustu tveimur uppsagnahrinum. Þær hafi verið gerðar í flýti og ýmis mistök gerð. „Og lítil greining á bak við. Það er meiri greining núna þrátt fyrir að það sé alveg hægt að gagnrýna hana.“
Rýna í veikindadaga
Þetta var síðasta lota í uppsögnum í miðlægri stjórnsýslu en næsta hagræðingaraðgerð er að fækka veikindadögum. Hildur segir veikindi starfsfólks kosta borgina sex til sjö milljarða króna á ársgrundvelli.
„Ég hef haft miklar áhyggjur af veikindahlutföllum hjá borginni sem eru með því hæsta sem gerist hér á markaði,“ segir hún.
„Við viljum fyrst og fremst athuga hvort það séu einhverjar ástæður að baki því að starfsfólki okkar líði illa á sínum vinnustað og það fari í veikindi. En við þurfum líka að rýna hvort það sé einhver hópur þarna sem notar þennan veikindarétt með röngum hætti.“
Hildur telur ekki útlit fyrir að uppsagnirnar muni fjölga veikindadögum starfsfólks vegna álags.