Forsetaframbjóðandinn Flávio Bolsonaro, sem laut í lægra haldi í forsetakosningunum sem haldnar voru í Brasilíu á sunnudaginn, hefur flúið land.
Bolsonaro sætir rannsóknum í Brasilíu fyrir spillingu og peningaþvætti og þar sem hann var ekki kjörinn forseti er útséð með að hann öðlist þinghelgi.
Dómsúrskurður var kveðinn upp að loknum kosningum sem meinaði honum að yfirgefa Brasilíu og var honum jafnframt gert af hæstarétti landsins að skila inn vegabréfi sínu. Áður en til þess kom var Bolsonaro hins vegar kominn langleiðina til Bandaríkjanna.
Í kjölfarið var vegabréf hans fellt úr gildi en engu að síður tilkynnti utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna að Bolsonaro og fjölskyldu hans yrði veitt vegabréfsáritun. Ekki var tekið fram hvert för þeirra væri heitið en fréttamiðillinn CNN hefur heimildir fyrir því að þau séu mögulega komin til Flórída. Það er þó enn þá óstaðfest.
Viðurkennir ekki úrslit kosninganna
Í kjölfar fregna af flótta Bolsonaros sagði forsetinn endurkjörni, Luiz Inácio Lula da Silva, eða Lula eins og hann er oftast kallaður, að hafi Bolsonaro ekki gert neitt rangt hafi hann ekkert að óttast. „Þeir sem flýja land sitt í leyni hljóta að hafa eitthvað að fela,“ sagði Lula.
Lula vann kosningarnar um forsetaembættið með tæpum 52% atkvæða en Bolsonaro fékk rúm 48% atkvæða. Það sætti nokkrum tíðindum en lengi vel var Bolsonaro spáð betra gengi.
Flokkur Bolsonaros, Frjálslyndi flokkurinn, viðurkenndi úrslitin en það gerði Bolsonaro hins vegar ekki. Eftir að úrslitin voru ljós sagði hann ómögulegt að viðurkenna þau í ljósi aðstæðna og hvernig kosningar fóru fram. Sagðist hann ætla að fara fram á að kosningarnar yrðu ógildar.