Þjóðaröryggisráð Moldóvu hefur boðað til fundar vegna netárásar sem gerð var á gagnabanka stjórnvalda. Árásin átti sér stað dagana 19. til 23. október.
Skotmark þrjótanna voru yfir milljón nafnnúmer Moldóva, sem svipa til kennitalna. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum í landinu náðu hakkararnir að sækja 750.000 gagnamengi.
Maia Sandu forseti Moldóvu hefur boðað til fundar með þjóðaröryggisráðinu á næstu dögum og á þá að reyna að kortleggja árásina betur.
Vasile Tofan forsætisráðherra sagði að ýmislegt benti til þess að árásin fæli í sér „víðtækari herferð þar sem erlendir ríkisaðilar koma við sögu“.
Meðal þeirra gagna sem sótt var að voru nöfn, fæðingardagur, heilsufars- og fjárhagsupplýsingar Moldóva. Árásin er nú til rannsóknar en ekki liggur enn fyrir hverjir stóðu að baki henni.