Vox, þjóðernissinnaður fjarhægriflokkur á Spáni, hefur segist ætla að kæra fyrirtækið ADIF, sem sér um lestarinnviði landsins, fyrir manndráp af gáleysi eftir að hraðlest ók aftan á kyrrstæða lest í sveitarfélaginu Toledo í gær, miðvikudag.
Ákæra verður einnig gefin út á hendur starfsmönnum Atocha-stjórnstöðvarinnar sem leyfðu lestum að halda áfram för á öðru kerfi eftir að tæknivandamál komu upp sem gerðu það að verkum að átta lestir stöðvuðust.
Stutt er í þingkosningar á Spáni en þær verða haldnar 29. nóvember. Allir stjórnmálaflokkar hafa sagst munu gera hlé á kosningabaráttu sinni í ljósi atburðanna en ekki er ósennilegt að samgöngur verði nú fyrirferðameiri í málflutningi þeirra.
Mikið kurr er meðal Spánverja um ástand lestarinnviða sem eru orðnir gamlir og úreltir.
Lestarstjórar fengu fyrirmæli frá stjórnstöð
Lögregla og rannsóknarnefnd lestarslysa yfirheyrðu starfsmenn Atocha-stjórnstöðvarinnar í gær en hljóðupptökur af samskiptum milli stöðvarinnar og lestarstjóra beggja lesta hafa verið birtar í spænskum fjölmiðlum.
Þar heyrist lestarstjóri hraðlestarinnar fá fyrirmæli um að halda ferð áfram á eðlilegum hraða á meðan lestarstjóri kyrrstæðu lestarinnar tilkynnir að hún geti ekki lagt af stað. Fimm mínútum síðar ók hraðlestin inn í kyrrstæðu lestina.
397 manns voru um borð í hraðlestinni og 147 um borð í þeirri kyrrstæðu. Að minnsta kosti sextíu og átta eru látnir og 77 særðir eftir slysið.