Hátt í 100 þúsund manns hafa neyðst til að flýja heimili sín á suðausturströnd Indlands eftir að hitabeltisfellibylurinn Arnab kom að landi í dag. Fellibylnum fylgir úrhellisrigning og meðalvindhraði á landi er á bilinu 34-35 metrar á sekúndu en vindhviður geta náð allt að 42 metrum á sekúndu.
Veðurstofa Indlands hefur varað við því að stráþakshús muni gjöreyðileggjast í veðrinu og þá megi gera ráð fyrir flóðum og að rafmagnsstaurar falli. Einnig sé von á miklu tjóni á ökrum með háan gróður.
Í Sri Lanka hefur skólum verið lokað og þá hafa nepölsk stjórnvöld gefið út viðvaranir vegna snjóstorma og -flóða.