Í tilkynningu segir að Loftslagsdagurinn hafi fest sig í sessi sem einn helsti viðburðurinn á sviði loftslagsmála á Íslandi. Þar komi fram sérfræðingar úr ýmsum áttum og fjalli um loftslagsmál á mannamáli.
Hornsteinn dagsins er erindi þar sem við fjöllum um stöðu losunar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Þar veitum við innsýn í losunarbókhaldið sem við höldum utan um hjá Umhverfis- og orkustofnun.
Hægt er að fylgjast með í beinu streymi í spilara að neðan.
Dagskrá 2026
Þema Loftslagsdagsins að þessu sinni eru loftslagsbreytingar og öryggi.
09:00 Upptaktur
Opnun ‒ Gestur Pétursson, forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar
Ávarp ‒ Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Loftslagsáhætta í samhengi þjóðaröryggis ‒ Helgi Valberg Jensson, ritari þjóðaröryggisráðs
09:30 Hvernig miðar okkur?
Ísland, best í heimi? Staða losunarbókhalds og aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum - Birgir Urbancic Ásgeirsson, sérfræðingur í teymi losunarbókhalds hjá Umhverfis- og orkustofnun og Elín Björk Jónasdóttir, sérfræðingur á skrifstofu loftslagsmála í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
10:00 Morgunkaffi
10:20 Orkuöryggi og loftslagsbreytingar
Aðgerðir stjórnvalda til að tryggja orkuöryggi: Mat, viðmið og ný verkfæri ‒ Hanna Björg Konráðsdóttir, skrifstofustjóri Raforkueftirlits hjá Umhverfis- og orkustofnun
Orkuöryggi í óvissum heimi ‒ Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður loftslags og sjálfbærni hjá Landsvirkjun
Trygg orka, alltaf ‒ Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets
Leitum ekki langt yfir skammt ‒ orkuskipti í þágu orkuöryggis ‒ Hörn Halldóru- og Heiðarsdóttir, sérfræðingur í teymi orkuskipta og orkunýtni hjá Umhverfis- og orkustofnun
11:00 Hlé
11:15 Fæðuöryggi og loftslagsbreytingar
Hver fæðir Ísland þegar á reynir? ‒ Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands
Viðnámsþróttur fæðukerfa á Íslandi ‒ Ólafur Ögmundarson, prófessor og deildarforseti Matvæla- og næringarfræðideildar Háskóla Íslands
Hugvekja ‒ Sigríður Hagalín Björnsdóttir, rithöfundur
Auðlindir hafsins: Fæðuöryggi á tímum loftslagsbreytinga ‒ Guðmundur Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs hjá Hafrannsóknarstofnun
Tækifærin í lífrænu Íslandi ‒ Anna María Björnsdóttir, verkefnastjóri Lífræns Íslands
12:10 Hádegismatur
12:50 Svansvottaður viðburður - hvað þýðir það?
Stutt spjall - Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi og Rakel Lárusdóttir, sérfræðingur á fasteigna- og umhverfissviði Hörpu
12:55 Samfélagsöryggi og loftslagsbreytingar
Mannvirki til framtíðar, aðlögun að breyttu loftslagi ‒ Elín Þórólfsdóttir, teymisstjóri starfsumhverfis mannvirkjagerðar hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Sjávarflóð og samfélagsöryggi ‒ Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands
Tré og samfélag: Verkefni Rauða krossins í Síerra Leóne ‒ Sólrún María Ólafsdóttir, teymisstjóri alþjóðaverkefna hjá Rauða krossinum
Áskoranir við skipulagsgerð á lágsvæðum ‒ Gunnar Páll Eydal, Verkís
Samhljómur eða sundurlausn í loftslagsmálum? ‒ Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
13:45 Lokaorð og ráðstefnuslit
Lokaorð ‒ Andri Snær Magnason, rithöfundur
14:00 Loftslagsdeginum lýkur
Fundarstjórar eru Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir og Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingar hjá Umhverfis- og orkustofnun.