Efri deild franska þingsins hefur samþykkt að frumvarp sem miðar að því að gera mótmælendur fjárhagslega ábyrga fyrir tjóni sem hlýst af götumótmælum verði tekið til áframhaldandi umræðu á þjóðþinginu.
Frumvarpið hefur verið gagnrýnt fyrir að þrengja að réttinum til að mótmæla en efri deildin samþykkti það með 229 atkvæðum gegn 105. Það var að mestu stutt af stjórnmálaflokkum á miðjunni og til hægri, þar á meðal af Þjóðfylkingunni, fjarhægriflokki Marine Le Pen.
Frumvarpið var fyrst lagt fram vegna óeirða sem blossuðu upp eftir sigur fótboltaliðsins Paris Saint-Germain á Arsenal í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í maí.
Í ljósi mótmælaöldunnar sem nú gengur yfir Frakkland og hefur í sumum tilfellum þróast út í óeirðir hefur frumvarpið þó fengið nýtt vægi.
Friðsamir mótmælendur skaðabótaskyldir
Verði frumvarpið að lögum gæti mótmælendum verið gert að greiða allt að tíu þúsund evrur fyrir tjón sem hlýst af völdum mótmæla. Það er greiðsla upp á tæplega 1,4 milljónir íslenskra króna.
Gagnrýnendur frumvarpsins benda á að friðsamir mótmælendur gætu orðið skaðabótaskyldir þrátt fyrir að hafa ekki valdið neinu tjóni. Það er vegna þess að í frumvarpinu er kveðið á um sameiginlega ábyrgð þeirra sem teljast „meðvitaðir þátttakendur“ í hóp sem veldur tjóni.
Vinstriflokkar á þingi saka stjórnvöld um gerræðislega tilburði og segja það hörmulegt að leggja mótmælendur og óeirðaseggi að jöfnu með lögum.