Vill óháð mat á áhrifum sölu Ljósleiðarans á þjóðaröryggi
Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur, telur að Ljósleiðarinn eigi áfram að vera í meirihlutaeigu hins opinbera. Hann lagði til að óháð verðmat og greining á áhrifum mögulegrar sölu á samkeppni, almannahagsmuni og þjóðaröryggi lægju fyrir áður en sala yrði heimiluð.
Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur, gagnrýnir áform um mögulega sölu Ljósleiðarans, sem er að fullu í eigu Orkuveitunnar. Hann telur að fyrirtækið eigi áfram að vera að minnsta kosti í meirihlutaeigu hins opinbera og segir að ekki hafi legið fyrir nægilega vandaðar greiningar þegar stjórn Orkuveitunnar fjallaði um málið.
„Mín bjargfasta trú hefur verið lengi, en ekki síst á allra síðustu árum, að svona mikilvægt innviðafyrirtæki eigi að vera áfram í eigu Orkuveitunnar. Að minnsta kosti í meirihlutaeigu hins opinbera,“ segir Skúli, nýstiginn út af trúnaðarfundi borgarstjórnar um fyrirhugaðan niðurskurð og uppsagnir.
„Pólitíska staðan er auðvitað sú að við erum með mjög harðan hægri meirihluta í borginni“
Hluthafafundur Ljósleiðarans hefur samþykkt að veita umboð til aðgerða sem gætu leitt til breytinga á eignarhaldi fyrirtækisins. Til greina kemur að selja félagið að hluta eða í …