Það vakti athygli í síðasta mánuði þegar Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins talaði um að Kanada gæti fengið „aukaaðild“ að Evrópusambandinu (e. associate membership); nokkuð sem fáir áttuðu sig á hvað þýddi. Eftir stefnuræðu Von der Leyen, þar sem hún notaði þetta hugtak, hefur komið í ljós að ríkisstjórnir aðildarríkja ESB virðast ekki verið hafðar með í ráðum, áður en hún lagði þetta til.
„Það er enn verið að ræða þetta,“ sagði háttsettur embættismaður ráðherraráðsins við fréttamenn hér í Brussel í gær, þegar hann og fleiri embættismenn fjölluðu óformlega um leiðtogafund Evrópusambandsins og Kanada, sem haldinn verður í Montréal á morgun og föstudag.
Á þessum óformlega blaðamannafundi í gær var lögð áhersla á mikilvægi þessa leiðtogafundar og þau skref sem til stendur að taka til að breikka og dýpka samstarf Evrópusambandsins og Kanada.
Breytingar á sameiginlegri yfirlýsingu
En þótt öll 27 aðildarríki Evrópusambandsins séu einhuga um að styrkja samstarfið við Kanada, ekki síst á sviði orkumála og varnar- og öryggismála, þá eru skiptar skoðanir um merkimiðann á þessu sambandi - og það kemur berlega í ljós í drögum að sameiginlegri yfirlýsingu leiðtogafundarins, sem nú er verið að berja saman, bæði hér í Brussel og í Ottawa.
Í drögunum sem voru í vinnslu í upphafi vikunnar - og fréttastofa hefur undir höndum - er búið að strika yfir kaflaheitið "Associate membership", og inni í textanum sjálfum er búið að bæta við þeim fyrirvara að þetta sé hugtak sem framkvæmdastjórnin hafi sett fram.
Í frétt Politico um þetta mál er fullyrt að Þýskaland og minnst þrjú önnur aðildarríki séu ekki sátt við þessa orðanotkun; ekki er langt síðan Friedrich Merz Þýskalandskanslari notaði einmitt þetta sama hugtak í tillögu sem hann setti fram um að Úkraína fengi aðild að Evrópusambandinu í skrefum - fengi „aukaaðild“ til að byrja með.
Drögin verða væntanlega rædd - og frá þeim gengið - á fundi fastafulltrúa aðildarríkjanna hér í Brussel í dag, enda ekki seinna vænna.
Mikið lagt í leiðtogafundinn í Montréal
En þótt deilt sé um hugtök og orðalag, þá virðist samt liggja fyrir að það er eining í röðum aðildarríkjanna um kosti þess að auka og dýpka samstarfið við Kanada, á þessum „ólgutímum í alþjóðamálum,“ eins og einn embættismaður orðaði það á fundinum í gær; það var ítrekað talað um að þetta væri sögulegt tækifæri til að treysta sambandið, að mynda „Bandalag til framtíðar,“ sem önnur ríki gætu tekið þátt í þegar fram líða stundir.
„Þetta verður samband sem kemst eins nálægt beinni aðild og kostur er,“ sagði annar embættismaður Evrópusambandsins í gær, en kom sér reyndar hjá því að svara spurningunni hvort samband Kanada við ESB yrði nánara en það sem EES-ríkin búa við - og í drögum að yfirlýsingunni er fátt sem bendir til þess að svo verði.
Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar ESB og Antonio Costa, forseti leiðtogaráðsins mæta bæði á þennan fund í Montréal, sem og minnst sex úr framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, þar á meðal Kaja Kallas utanríkismálastjóri ESB, og hitta Mark Carney forsætisráðherra Kanada og ráðherra úr ríkisstjórn hans.