Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels og mótframbjóðandi hans Gadi Eisenkot hafa báðir heitið því að þeir muni hefja stjórnarmyndunarviðræður.
Engu að síður er allt útlit fyrir að hvorki stjórnarblokk Netanjahús né stjórnarandstöðublokk Eisenkots fái nægilega mörg sæti til að geta myndað þingmeirihluta.
Þeir flokkar sem teljast líklegir til að bæta við sig mesta fylginu eru flokkar ísraelskra araba en útlit er fyrir að samanlagt bæti þeir allt að átta sætum við þau tíu sem þeir höfðu fyrir.
Þeir hafa sýnt áhuga á að styrkja blokk Eisenkots en Netanjahú hefur þvertekið fyrir samvinnu við arabaflokka.
Ísrael stefnt í voða með samstarfi við arabaflokka
„Það er bannað, hreinlega bannað, að stofna Ísrael í voða og mynda stjórn sem reiðir sig á and-síoníska arabaflokka, flokka sem eru í andstöðu við tilvist okkar, sem líta á Hamas sem góðgerðasamtök og kalla hermenn okkar stríðsglæpamenn.“
Þetta sagði Netanjahú í ræðu sem hann hélt fyrir stuðningsmenn sína á kosningavöku Likud-flokksins í nótt og hét því að stofna sterka og þjóðernissinnaða hægristjórn.
Ef ekki tekst að mynda stjórn þarf að boða til nýrra kosninga en þangað til yrði sitjandi stjórn Netanjahús áfram við völd.