Vildi konurnar úr „búrinu“ – Félag múslima losaði sig við frjálslyndan formann sem þótti of vinsamlegur við samkynhneigða

Í tilefni umræðunnar um íslam á Íslandi og nýlegra frétta af heimsókn pakistanska trúarleiðtogans Muhammads Taqi Usmani ákvað Nútíminn að rýna í sögu trúfélaga múslima hér á landi. Sérstaklega var horft til stöðu kvenna og samkynhneigðra, réttar fólks til að yfirgefa trú sína og svigrúms frjálslyndari radda innan félaganna.

Innan Félags múslima á Íslandi komu upp deilur um stöðu kvenna og samkynhneigðra árið 2015. Sverrir Agnarsson missti þá formennsku í félaginu og sagði frjálslynd viðhorf sín hafa verið notuð gegn sér. Gunnar Smári Egilsson, núverandi ritstjóri Samstöðvarinnar, sagði sig úr sama félagi vegna deilnanna.

Deilt um mörk gagnrýninnar

Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur gagnrýnt ummæli Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss, um múslima og innflytjendamál en hann sagði að óheftur straumur innflytjenda til Evrópu, sérstaklega múslima, væri að valda skaða. Jasmina hefur lagt áherslu á að fólk sé metið sem einstaklingar og að gagnrýni á stefnur og trúarlegar hugmyndir sé studdar skýrum dæmum.

„Hvaða ákvarðanir? Hvaða hegðun? Hvaða gögn styðja hvaða niðurstöðu?“ spurði hún í Facebook færslu sem Vísir fjallaði um 20. október.

Jasmina hefur jafnframt hvatt til þess að trúarbrögð, kúgun og kvenfyrirlitning sæti gagnrýni og sagt að hún hafi sjálf barist fyrir réttindum kvenna og hinsegin fólks.

Magnea Marínósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur hefur kallað eftir ákæru vegna ummæla Elliða. Samkvæmt umfjöllun DV taldi hún að ríkissaksóknari ætti að ákæra hann vegna ummælanna. Þetta kom fram í Rauða borðinu á Samstöðinni 26. október. Sigursteinn Másson, annar gestur þáttarins, tók undir að mikilvægt væri að láta reyna á ummælin.

Elliði hefur á móti vísað til Íslandsheimsóknar Usmani og afstöðu trúarleiðtogans til trúarfráhvarfs til stuðnings gagnrýni sinnar á trúarlega öfgahyggju.

Sverrir sagði frjálslynd viðhorf notuð gegn sér

Ágreiningur um jafnrétti innan Félags múslima á Íslandi kom skýrt fram í október 2015. Sverrir Agnarsson tapaði þá formannskjöri fyrir Salmann Tamimi, sem fékk 32 atkvæði gegn 14 atkvæðum Sverris.

Í samtali við Vísi eftir fundinn sagði Sverrir að unnið hefði verið markvisst gegn honum með rógi. Meðal þess sem hefði verið notað gegn honum væru viðhorf hans til kvenna og samkynhneigðra.

Sverrir sagði Salmann hafa dreift því að Sverrir teldi múslimskum konum ekki skylt að ganga með slæðu og væri „of vinsamlegur í garð samkynhneigðra“. Sverrir sagði jafnframt að Salmann hefði snúið út úr orðum hans og brenglað þau.

Sverrir hafði einnig tekið afstöðu með konum innan félagsins sem vildu fá að biðja í sama rými og karlarnir. Hann lýsti aðstöðunni sem búri sem hefði staðið óklárað í tíu ár. Að sögn Sverris mætti þessi tillaga hans harðri andstöðu og var eitt þeirra mála sem ollu átökum í aðdraganda formannsskiptanna.

Stefán Einar Stefánsson hefur síðar einnig gagnrýnt aðstöðu kvenna við bænahald. Í umfjöllun Nútímans 11. ágúst á þessu ári var haft eftir honum: „Konurnar eru geymdar inni í búri á meðan.“

Ritstjóri Samstöðvarinnar yfirgaf félagið

Gunnar Smári Egilsson, sem er nú ritstjóri og skráður ábyrgðarmaður Samstöðvarinnar, sagði sig sem fyrr segir úr Félagi múslima á Íslandi í kjölfar þessara deilna.

„Nú hafa hins vegar gosið upp í félaginu deilur um klæðaburð kvenna og afstöðu til samkynhneigðra,“ skrifaði hann á Facebook 12. október 2015.

Hann sagðist aðeins laustengdur félaginu og ekki treysta sér til að taka þátt í deilunum. Hann hefði því sagt sig úr því.

Qadhi hafnar samkynja hjónaböndum innan íslams

Í júní á þessu ári tók Félag múslima á móti bandaríska trúarfræðingnum Yasir Qadhi, sem hélt fyrirlestur og föstudagspredikun á vegum félagsins.

Í grein á Al Jazeera árið 2023 hafnaði Qadhi túlkunum frjálslyndari múslima sem telja samkynja hjónabönd samrýmanleg íslam. Hann tók þátt í að semja yfirlýsingu þar sem hjónaband er skilgreint sem samband karls og konu og kynferðisleg sambönd samkynja fólks talin óheimil.

Qadhi gerir í greininni greinarmun á samkynja aðdráttarafli, sem hann segir ekki synd í sjálfu sér, og kynferðislegum athöfnum. Hann segir samkynhneigt fólk sem vilji fylgja íslömskum trúarreglum eiga rétt á kærleika og réttindum trúaðra.

Usmani ver dauðarefsingar vegna trúarfráhvarfs

Usmani hélt fyrirlestur í Stórmoskunni í Skógarhlíð 21. október. Hún er rekin af Stofnun múslima á Íslandi, sem er annað trúfélag en Félag múslima á Íslandi.

Morgunblaðið greindi frá því 27. október að Usmani hefði varið dauðarefsingar vegna trúarfráhvarfs, sem og aflimanir og grýtingar sem refsingar samkvæmt íslömskum rétti.

Í texta sem birtur er á ensku undir nafni hans á vefnum Muslim Skeptic er því sérstaklega hafnað að uppreisn eða hryðjuverk þurfi að fylgja trúarfráhvarfi til að dauðarefsing eigi við. Þar er trúarfráhvarfið sjálft talið dauðasök í íslömsku ríki.

Nútíminn hefur einnig greint frá frétt Aaj TV frá desember 2023 um að Usmani hefði hitt æðstu leiðtoga Hamas í Katar og tilkynnt um umfangsmikinn fjárstuðning við samtökin.

Dómsmálaráðherra: „Sjónarmið sem eiga ekki pláss á Íslandi“

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir boðskap Usmanis ganga algjörlega gegn grunngildum íslensks samfélags. Þetta kom fram í samtali hennar við mbl.is 27. október að loknum ríkisstjórnarfundi.

Þorbjörg var spurð um afstöðu Usmanis til dauðarefsinga vegna trúarfráhvarfs, aflimana og grýtinga, auk gagnrýni hans á afglæpavæðingu kynferðissamskipta samkynhneigðra. Hún vísaði til mannréttinda og annarra réttinda einstaklinga í íslensku samfélagi.

„Sjónarmið sem eiga ekki pláss á Íslandi í mínum huga,“ sagði Þorbjörg.

Engin svör um afstöðu félagsins

Nútíminn sendi Félagi múslima á Íslandi fyrirspurn fimmtudaginn 22. október og spurði meðal annars um formannsskiptin árið 2015 og hvort áherslur félagsins væru frjálslyndari nú en þegar Sverrir missti formennskuna.

Óskað var svara um afstöðu félagsins til réttinda kvenna og samkynhneigðra, til fólks sem yfirgefur íslam og til réttar samkynhneigðra til borgaralegs hjónabands. Einnig var spurt um heimsókn Qadhi.

Engin svör höfðu borist við fyrirspurn Nútímans þegar þessi frétt var skrifuð.

#búrinu #félag #konurnar #múslima #vildi

Upprunaleg slóð:
https://www.nutiminn.is/forsida/vildi-konurnar-ur-burinu-felag-muslima-losadi-sig-vid-frjalslyndan-formann-sem-thotti-of-vinsamlegur-vid-samkynhneigda/

📰 Aðrar fréttir

Hvorug fylkingin með meirihluta í Ísrael
📅 28.10.2026 👁️ 0
Hvorug fylkingin með meirihluta í Ísrael
Fylking Benjamins Netanjahús forsætisráðherra hefur hlotið meiri stuðning en bandalag stjórnarandstöðuflokka þegar 66 prósent atkvæða í ísraelsku þing...
Telur starfs­menn hæfa til að meta stjórn­sýslu yfir­manns síns - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 1
Telur starfs­menn hæfa til að meta stjórn­sýslu yfir­manns síns - Vísir
Ríkisendurskoðun tilkynnti fyrir tæpu ári að stofnunin ætlaði að ráðast í stjórnsýsluúttekt á stjórnsýslu loftslagsmála. Tilkynningin kom í kjölfar fr...
Hildi sagt upp eftir tæp 19 ár hjá borginni: „Sár og leið og reið og vonsvikin“
📅 28.10.2026 👁️ 1
Hildi sagt upp eftir tæp 19 ár hjá borginni: „Sár og leið og reið og vonsvikin“
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir er ein þeirra starfsmanna Reykjavíkurborgar sem var sagt upp í gær. Stöðugildum var fækkað um 74 í gær. Fimmtíu starfs...
Lög brotin við fram­leiðslu „túrbókjúklings“ í Dan­mörku - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 1
Lög brotin við fram­leiðslu „túrbókjúklings“ í Dan­mörku - Vísir
Umfjöllun miðilsins snýst um starfsemi kjúklingabús í Norður-Jótlandi sem er í eigu danska bóndans Christian Tvergaard. TV2 setti falda myndavél á sta...
Árborg í mínus á fyrri hluta árs
📅 28.10.2026 👁️ 0
Árborg í mínus á fyrri hluta árs
Sveitarfélagið Árborg var rekið með 129 milljóna króna halla á fyrri helmingi árs. Verðbólga setti sitt mark á reksturinn því fjármagnsgjöld voru 300 ...
Jet2 meets Fuerteventura tourism bosses to discuss British holiday market
📅 28.10.2026 👁️ 0
Jet2 meets Fuerteventura tourism bosses to discuss British holiday market
Jet2 has met tourism professionals in Fuerteventura to discuss British holiday demand and the outlook for the winter season on the island.The UK is on...
Keyptu dýran varning fyrir fé sem var svikið út úr Landsbankanum
📅 28.10.2026 👁️ 0
Keyptu dýran varning fyrir fé sem var svikið út úr Landsbankanum
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur 70 manns fyrir umboðssvik og peningaþvætti með því að hagnýta sér kerfisvillu í netbanka Landsbankans í...
Tvær lægðir á leiðinni - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 1
Tvær lægðir á leiðinni - Vísir
Þetta er meðal þess sem kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Þar segir að í dag verði strekkings vestanátt á Austurlandi fram...
1,500 homes, bars and restaurants left without electricity in south Lanzarote
📅 28.10.2026 👁️ 0
1,500 homes, bars and restaurants left without electricity in south Lanzarote
More than 1,500 homes, bars and restaurants in southern Lanzarote were left without electricity for several hours yesterday, Tuesday 27th October, aft...
Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt ó­leyst morð - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 1
Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt ó­leyst morð - Vísir
Í frétt BBC segir að í apríl hafi yfirvöld í Utah staðfest að önnur unglingsstúlka, Laura Ann Aime, hefði einnig verið fórnarlamb Bundys. Sönnunargögn...
Netanjahú þvertekur fyrir að starfa með arabaflokkum
📅 28.10.2026 👁️ 1
Netanjahú þvertekur fyrir að starfa með arabaflokkum
Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels og mótframbjóðandi hans Gadi Eisenkot hafa báðir heitið því að þeir muni hefja stjórnarmyndunarviðræður.En...
Óeining um „auka-aðild“ Kanada að Evrópusambandinu
📅 28.10.2026 👁️ 1
Óeining um „auka-aðild“ Kanada að Evrópusambandinu
Það vakti athygli í síðasta mánuði þegar Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins talaði um að Kanada gæti fengið „auka-aðil...
Óeining um „aukaaðild“ Kanada að Evrópusambandinu
📅 28.10.2026 👁️ 0
Óeining um „aukaaðild“ Kanada að Evrópusambandinu
Það vakti athygli í síðasta mánuði þegar Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins talaði um að Kanada gæti fengið „aukaaðild...
Bergur Ebbi spáir bakslagi í gervigreindaræðinu: „Fólk mun jafnvel fá hroll“
📅 28.10.2026 👁️ 2
Bergur Ebbi spáir bakslagi í gervigreindaræðinu: „Fólk mun jafnvel fá hroll“
Rithöfundurinn og frumkvöðullinn Bergur Ebbi telur að núverandi gervigreindaræði muni ekki vara að eilífu. Í nýjum þætti Gervigreindarklúbbsins hjá St...
Vill óháð mat á áhrifum sölu Ljósleiðarans á þjóðaröryggi
📅 28.10.2026 👁️ 1
Vill óháð mat á áhrifum sölu Ljósleiðarans á þjóðaröryggi
Vill óháð mat á áhrifum sölu Ljósleiðarans á þjóðaröryggi Skúli Helgason, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar og stjórn­ar­maður í Orku­veitu Reyk...
WEDNESDAY WEATHER: High temperatures and calima continue across the Canary Islands
📅 28.10.2026 👁️ 1
WEDNESDAY WEATHER: High temperatures and calima continue across the Canary Islands
The Canary Islands can expect another warm day today, Wednesday 28th October, with little change in temperatures that are higher than average for the ...
Þurrt víðast hvar
📅 28.10.2026 👁️ 1
Þurrt víðast hvar
Landsmenn eiga von á frekar rólegu veðri víðast hvar í dag. Þó verður strekkings vestanátt á Austurlandi fram eftir degi og smá væta verður á norðaust...
Slóvenskur jökull horfinn með öllu
📅 28.10.2026 👁️ 1
Slóvenskur jökull horfinn með öllu
Síðasti ísfláki Triglav-jökulsins í Slóveníu er með öllu horfinn. Fleiri evrópskir jöklar hafa liðið fyrir heitt sumar en skammt er síðan jöklaeftirli...
Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum - Vísir
Samkvæmt úrskurði kærunefndar húsamála má leigusalinn ganga að tryggingarfé leigjandans að fjárhæð 990.000 krónur. Þá ber leigjandanum einnig að greið...
Helmingur at­kvæða talinn og enginn með þing­meiri­hluta - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Helmingur at­kvæða talinn og enginn með þing­meiri­hluta - Vísir
Helsti áskorandi og andstæðingur Netanjahú er Gadi Eisenkot, fyrrverandi yfirmaður ísraelska hersins. Útgönguspár bentu til þess í gær að flokkur hans...
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Minnkum gjána
📅 28.10.2026 👁️ 4
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Minnkum gjána
Mynd Það er auðvelt að segjast standa með landsbyggðinni.
Af­kom­endur síðasta böðuls á Ís­landi búa enn á Illuga­stöðum - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Af­kom­endur síðasta böðuls á Ís­landi búa enn á Illuga­stöðum - Vísir
Þau Friðrik og Agnes voru hálshöggvin fyrir morð á tveimur mönnum, Natan Ketilssyni og Pétri Jónssyni, en Natan var bóndi á Illugastöðum. Bróðir Natan...
Rússar bera víurnar í Afríkulönd
📅 28.10.2026 👁️ 4
Rússar bera víurnar í Afríkulönd
Leiðtogar og sendinefndir 48 Afríkuríkja eru væntanlegir til Moskvu í dag og á morgun til að sitja Rússlands-Afríkuráðstefnuna svonefndu, en hún er nú...
Þingið vill gera mótmælendur fjárhagslega ábyrga
📅 28.10.2026 👁️ 4
Þingið vill gera mótmælendur fjárhagslega ábyrga
Efri deild franska þingsins hefur samþykkt að frumvarp sem miðar að því að gera mótmælendur fjárhagslega ábyrga fyrir tjóni sem hlýst af götumótmælum ...
Þúsund ára mynt seld á 2,5 milljónir íslenskra króna
📅 28.10.2026 👁️ 4
Þúsund ára mynt seld á 2,5 milljónir íslenskra króna
Þúsund ára gömul mynt frá tíma danska konungsins Sveins tjúguskeggs, sonar Haraldar blátannar, var seld á uppboði á þriðjudag fyrir 18.300 evrur, eða ...
Luxury cruise passengers stranded in Cambodia due to soaring fuel costs
📅 28.10.2026 👁️ 4
Luxury cruise passengers stranded in Cambodia due to soaring fuel costs
The Villa Vie Odyssey suspends its voyage and is working with passengers on "temporary living arrangements".
Neil Young sues Trump for playing Rockin' in the Free World at a rally without a licence
📅 28.10.2026 👁️ 4
Neil Young sues Trump for playing Rockin' in the Free World at a rally without a licence
The Canadian-American musician sued Trump in 2020 over unauthorised use of song at a political event.
100 þúsund flýja undan fellibylnum Arnab
📅 28.10.2026 👁️ 4
100 þúsund flýja undan fellibylnum Arnab
Hátt í 100 þúsund manns hafa neyðst til að flýja heimili sín á suðausturströnd Indlands eftir að hitabeltisfellibylurinn Arnab kom að landi í dag. Fel...
Israeli exit polls suggest no clear winner in pivotal general election
📅 28.10.2026 👁️ 4
Israeli exit polls suggest no clear winner in pivotal general election
Two polls project that veteran PM Benjamin Netanyahu and former military chief Gadi Eisenkot are tied, with neither winning a majority.
Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
📅 28.10.2026 👁️ 3
Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
Forsetaframbjóðandinn Flávio Bolsonaro, sem laut í lægra haldi í forsetakosningunum sem haldnar voru í Brasilíu á sunnudaginn, hefur flúið land.Bolson...
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
📅 28.10.2026 👁️ 3
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
After storms across the UK, the weather is set to turn calmer with mist and fog at times over the coming week.
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
📅 28.10.2026 👁️ 4
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
AI has made some awesome scientific discoveries. But now, questions are being raised about its accuracy
Fleetwood Town: League Two club fearless for EFL Cup quarter-final after Arsenal upset
📅 28.10.2026 👁️ 0
Fleetwood Town: League Two club fearless for EFL Cup quarter-final after Arsenal upset
A whopping 83 league places separated Fleetwood from Arsenal, yet the hosts booked their place in the Carabao Cup quarter-final thanks to their penalt...
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
📅 28.10.2026 👁️ 3
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
Polls have closed in the Israeli election, but there is no clear winner.
MS patient left in 'horrific' pain amid UK wide medicine shortage
📅 28.10.2026 👁️ 0
MS patient left in 'horrific' pain amid UK wide medicine shortage
Jill Kenning says she has been unable to get a drug she uses to manage her condition.
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
„Það er ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. „Það er...
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
Bolsonaro hefur enn ekki formlega játað ósigur í kosningunum sem fóru fram um helgina. Flokkur hans, Frjálslyndisflokkurinn, hefur þó viðurkennt sigur...
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
Á eina fallbyssuna eru skilaboð sem hafa verið þýdd sem: „Gereyðið bandarísku heimsvaldasinnunum, svornum óvinum kóresku þjóðarinnar.“ Talið er að Nor...
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
📅 27.10.2026 👁️ 4
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
Texasmaðurinn Garrick Stafford hafði varið heilu sumri í að skiptast á skilaboðum við dömu sem hann kynntist á netinu, rauðhærðan förðunarfræðing að n...
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 4
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
📅 27.10.2026 👁️ 4
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
Fimmtug kona í Flórída fylki í Bandaríkjunum hefur verið handtekin fyrir alvarlega vanrækslu fjögurra barna sinna. Skildi hún þau ein eftir heima á me...
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
Neyð á Kúbu hefur aukist eftir að Bandaríkjastjórn herti í ársbyrjun á viðskiptabanni sem hefur verið í gildi í yfir sex áratugi. Á Allsherjarþingi Sa...
Brúin leggur af stað yfir ána
📅 27.10.2026 👁️ 5
Brúin leggur af stað yfir ána
Það tekur um tíu daga að draga nýja Ölfusárbrú yfir ána, á sinn stað. Ferðalagið nemur 330 metrum og hún fer um fimm metra á klukkustund.Brúin var smí...
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
📅 27.10.2026 👁️ 4
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
Uppistandarinn sprenghlægilegi Sarah Millican gerir stólpagrín að viðbrögðum Íslendinga við heiti á sýningunni hennar þegar hún kom fyrst til landsins...
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
„Við vorum að fylgja eftir samtali sem við áttum,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu en þessi sami hópur, forsæti...
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 4
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
„Á meðan ég var í flugi fékk ég fundarboð, sem ég eðlilega sá ekki, og í rúllustiga á flugvelli á leið í lest fékk ég uppsagnarbréf frá Reykjavíkurbor...
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
📅 27.10.2026 👁️ 4
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
As the US president casts doubt on the security of the midterm elections, BBC Verify examines his claims.
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var ein þeirra sem sagt var upp hjá Reykjavíkurborg í dag. Hún greinir frá þessu í færslu á Facebook.Hildur hafði star...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
Þingkosningarnar 3. nóvember gætu ráðið því hvort Donald Trump fær að fara sínu fram næstu tvö árin eða hvort bandaríska lýðveldið veitir honum loksin...