Þetta er meðal þess sem kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Þar segir að í dag verði strekkings vestanátt á Austurlandi fram eftir degi, en annars hægari vindur og það kólnar heldur. Þurrt víðast hvar síðdegis, fyrir utan smá vætu á norðausturhorninu.
Í nótt nálgast svo næsta lægð úr suðvestri. Hún veldur hvassri suðaustanátt sunnan- og vestantil í fyrramálið, með rigningu og hlýnandi veðri. Seinnipartinn lægir væntanlega aftur og styttir upp, fyrst suðvestanlands.
Seint annað kvöld kemur svo frekar máttlítil lægð upp að suðausturströndinni og fer svo áfram til norðurs. Með henni mun rigna allmikið, einkum á Suðausturlandi.
Á föstudag er svo útlit fyrir sunnan- og suðvestanátt, víða 5-13 m/s, en líkur á allsnörpum vindhviðum á Norðurlandi. Skúraleiðingar, en yfirleitt þurrt norðaustan- og austanlands. Heldur kólnandi í bili.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag:
Suðaustan 13-20 m/s með talsverðri rigningu sunnantil, en hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hægari sunnanátt og skúrir vestantil undir kvöld, en bætir í úrkomu fyrir austan. Hiti 6 til 12 stig.
Á föstudag:
Suðlæg átt 5-13 m/s, en hvassari á stöku stað fyrir norðan. Skúrir eða slydduél sunnan- og vestantil, en styttir upp á Norður- og Austurlandi fyrir hádegi. Hiti 3 til 8 stig.
Á laugardag:
Suðvestanátt 5-13 og skúrir eða slydduél, en bjart norðaustan- og austanlands. Heldur svalara.
Á sunnudag:
Suðvestanátt með vætu, en úrkomulítið norðaustantil. Bætir í rigningu um kvöldið á vesturhelmingi landsins. Heldur hlýnandi.
Á mánudag:
Suðaustanátt með vætu vestast og syðst, annars þurrt og bjartviðri norðaustantil. Hiti víða 5 til 10 stig.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir suðlæga átt, væta sunnan- og vestantil framan af degi, en þurrt annars staðar. Hiti breytist lítið.