Dorrit hefur verið virk á samfélagsmiðlum undanfarið ár og birtir reglulega myndir og myndbönd af ferðum sínum. Hún er mikill heimshornaflakkari og virðist af miðlunum að dæma á stöðugu flakki.
Fyrir tveimur dögum birti hún myndir af sér með vinum á veitingastað í Róm. Nú virðist Dorrit vera stödd í Ísrael, mögulega til að kjósa í þingkosngingunum þar í landi en hún hefur verið mjög gagnrýnin á embættisverk Benjamíns Netanyahu.
Sjá einnig: Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú
Í gær birti hún Instagram-færslu frá Acadia-strönd í borginni Herzliya þar sem mátti sjá tvær myndir af kakkalökkum, myndband af hafinu og myllumerkin #kakkalakkar og #sólarlag.
„Fyrir utan það að vera óhugnalegir, veit einhver hvort þessar skepnur valdi einhverjum skaða, þeir tóku mér fagnandi með útbreidda vængi þegar ég kom???“ skrifaði Dorrit við færsluna. Enn hefur hún þó ekki fengið nein svör frá fylgjendum sínum.
Undanfarna viku hefur Dorrit líka verið dugleg að sýna styrk sinn og fimi með því að birta annars vegar myndband af sér að gera upphífingar um borð í lest og hins vegar að hanga á hvolfi úr upphífingarstöng.