Kveikur fjallaði í gærkvöld um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda. Á síðasta áratug hefur slíkum úrræðum fjölgað hratt.
Haraldur Líndal, formaður stjórnar sjálfseignarstofnunarinnar Farsældartúns í Mosfellsbæ, segir ástæðu til að stjórnvöld endurskoði þá afstöðu að draga úr samkomulagi við sveitarfélögin um að ríkið taki að sér þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra.
„Síðan á náttúrulega ríkið að reka þessa þjónustu en ekki fela hana einkaaðilum eingöngu eins og gert er í dag, þannig að að mestu leyti sé þetta hjá Barna- og fjölskyldustofu og síðan séu einkaaðilar með einhvers konar hliðarþjónustu.“
Átakanlegar reynslusögur
Stjórn félagsins hefur bent á að mikið úrræðaleysi hafi verið í málefnum barna með fjölþættan vanda. Haraldur segir að átakanlegt hafi verið að hlusta á reynslusögur þeirra fjölskyldna sem rætt var við í Kveik.
Augljóst sé að álagið sé mikið bæði á foreldra og systkini. Ekki strandi þó á sveitarfélögunum að gera sitt besta, ekki síst með hliðsjón af öllum þeim peningum sem varið er í málaflokkinn.
Verkefni sem sveitarfélögin hafa hvorki reynslu né þekkingu til að sinna
„Þarna kom það skýrt fram að verið er að fela sveitarfélögunum verkefni sem þau hvorki hafa reynslu né þekkingu til þess að sinna,“ segir Haraldur. Ekki sé um mörg börn að ræða í sjálfu sér en sveitarfélögin séu rúmlega 60 og því sé verkefninu dreift á mjög marga.
„Það má kannski bera þetta saman við heilbrigðisþjónustu. Hvernig haldið þið að ástandið væri ef sveitarfélögum væri ætlað að gera samninga um gjörgæslu fyrir íbúa þeirra?“ Unnt sé að sinna þjónustunni með minni tilkostnaði og jafnvel hægt að gera meira fyrir þau börn sem séu í þörf.
Haraldur segir þjónustuna orðna margbreytilegri en hún var áður en ákveðið var að færa hana úr höndum ríkisins.
Samkvæmt ákvæðum barnaverndarlaga telur Haraldur að það sé á gráu svæði að sveitarfélögin sinni þjónustunni. „Þetta er það sérhæfð þjónusta að sveitarfélögin geta ekki sinnt þessu hvert og eitt,“ segir Haraldur.