Það er alltaf gaman að sjá ferðamenn deila efni frá ferðalögum sínum um Ísland. Umfjöllunarefnin eru alls konar, allt frá fegurð landsins yfir í matvöruverð í Bónus og hárvandræði eftir Bláa lónið.Sum vekja mikla athygli hérlendis en það kemur fyrir að sum myndbönd verði „viral“. Það á við um myndband frá TikTok-notandanum @teeceeisme0825. Hún var stödd á klakanum fyrr í mánuðinum en eins og landsmenn vita þá hefur október ekki verið skemmtilegasti mánuðurinn fyrir útiveru.
Myndband ferðamanns frá Íslandi slær í gegn – Tæplega 8 milljónir áhorfa