Verður Trump taminn eftir þingkosningar?
Evrópa gerir ekki ráð fyrir Bandaríkjunum í stuðningi við Úkraínu þótt Demókratar vinni stórsigur í þingkosningum. Óttast er að ósigur Trumps geti knúið hann til dáða eða ódæða á alþjóðavettvangi.
Verður Trump taminn eftir þingkosningar?
Donald Trump Bandaríkjaforseti gæti beðið afhroð í þingkosningunum í Bandaríkjunum í næsta mánuði. Í Evrópu búast menn þó ekki við að stórsigur demókrata myndi breyta miklu.
Frá vígvöllum Úkraínu til stjórnarherbergja evrópskra fyrirtækja hefur Trump valdið ítrekuðu uppnámi í álfunni síðan hann tók aftur við völdum í fyrra.
Á þessum viðburðaríku 22 mánuðum hefur hinn óútreiknanlegi forseti snúist harkalega gegn Kyiv, lagt tolla á bandamenn og hótað að taka Grænland.
Útlit er fyrir að bandarískir kjósendur geti refsað Repúblikanaflokki Trumps í kosningunum 3. nóvember og fært demókrötum meirihluta í fulltrúadeildinni, öldungadeildinni eða báðum deildum Bandaríkjaþings.
Þótt vonir standi til að þing þar sem andstæðingar Trumps ráða för geti haldið aftur af honum sögðu nokkrir embættismenn hjá Evrópusambandinu og Atlantshafsbandalaginu við AFP að þeir efist um að stórt tap þaggi niður í honum á alþjóðavettvangi.
„Við teljum ekki að …