Daniel Kaczorowski var á föstudag dæmdur til tveggja og hálfs árs fangelsis fyrir fíkniefnasmygl. Hann tók á móti rúmlega tveimur kílóum af kókaíni sem hann fékk send frá Svíþjóð með hraðsendingu.
Maðurinn neitaði sök. Hann sagðist ekki hafa vitað hvað væri í pakkanum og kvaðst ekki hafa átt von á neinni sendingu. Þrátt fyrir það borgaði hann 13 þúsund krónur í gjöld af sendingunni.
Dómari sagði skýringar mannsins verulega ótrúverðugar og sakfelldi hann fyrir smyglið. Frá fangadóminum dregst gæsluvarðhald sem hann sætti í hálfan mánuð í fyrra.