Helsti áskorandi og andstæðingur Netanjahú er Gadi Eisenkot, fyrrverandi yfirmaður ísraelska hersins. Útgönguspár bentu til þess í gær að flokkur hans, Yashar, myndi hafa naumlega betur en Likud-flokkur Netanjahú. Vefur Haaretz.
Netanahjú er þannig með flest sæti en ekki nóg fyrir þingmeirihluta. 120 sæti eru á Knesset, ísraelska þinginu, og því enginn með meirihluta eins og er.
Haft er eftir Netanahjú á vef Times of Israel í nótt að hægri fylkingin hafi unnið skýran sigur og að hann ætli sér að mynda hægri stjórn. Í ræðu sinni sagði hann Íran aldrei hafa verið veikara og Ísrael aldrei sterkara.
„Hægriblokkin hefur skýran og afgerandi meirihluta meðal síonísks almennings,“ sagði hann, „meðal gyðinga og allra þeirra sem styðja ríkið.“
Af þessum sökum þurfi Ísrael hægrisinnaða, þjóðlega og sterka ríkisstjórn.
„Það er það sem þarf að gera.“
Hann sagði óhugsandi að „að stofna Ísrael í hættu og mynda ríkisstjórn sem reiðir sig á andsíoníska flokka Araba,“ segir hann, „flokka sem eru andvígir sjálfri tilvist okkar, sem líta á Hamas sem góðgerðasamtök og kalla hermenn okkar stríðsglæpamenn.“
Fyrstu útgönguspár bentu til þess í gær að hvorki fylking Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra né stjórnarandstaðan myndi ná þeim 61 þingsæti sem þarf til að mynda meirihluta á ísraelska þinginu, Knesset, sem telur 120 þingsæti. Það virðist vera að raungerast. Kjörsókn var nokkuð góð, eða um 77,7 prósent samkvæmt vef BBC en kjörstaðir lokuðu klukkan 22 í gær og samkvæmt BBC hefur kjörsókn ekki verið meiri síðan 1999.
Talið er að um 70 þúsund Ísraelar, búsettir erlendis, hafi komið heim til að kjósa.
Uppfært klukkan 8.33:
Samkvæmt vef Haaretz er búið að telja 66,3 prósent atkvæða. Netanahjú og fylking hans er með 54 sæti Eisenkot með 48. Arabaflokkar eru með átján sæti. Það er því enn enginn með þingmeirihluta.