Steypubíll sem fór út af brú yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun í gærkvöld var dreginn upp úr ánni í dag.
Töluvert hafði lækkað í ánni en lokað hafði verið fyrir vatnsrennsli í ána sem er hjáveita fyrir Landsvirkjun.
Það tók um eina og hálfa klukkustund að ná bílnum upp úr Þjórsánni en hann var dreginn upp með krana.
Handrið brúarinnar er enn laskað og er því brúin lokuð þar til viðgerð er yfirstaðin.