Spáði fyrir um framtíð Rússlands
Fólk trúði ekki Önnu Politkovskaju, þegar hún sagði að farið yrði fram á „algjöra undirgefni við Pútín“.
Myrti rússneski blaðamaðurinn Anna Politkovskaja, sem var skotin til bana fyrir utan heimili sitt í Moskvu árið 2006, hafði „spáð fyrir um“ þróun Rússlands undir stjórn Vladímírs Pútíns, sagði ritstjóri hennar við AFP þegar Rússar minntust þess að 20 ár eru liðin frá dauða hennar.
Politkovskaja hafði af óttaleysi fjallað um stríðið í Tsjetsjeníu og valdatöku Pútíns og varað við einræðistilhneigingum hans á tíma þegar honum var fagnað og hann tekinn í sátt á Vesturlöndum.
Hún var skotin til bana í lyftu fjölbýlishússins þar sem hún bjó í miðborg Moskvu 7. október 2006 – á 54 ára afmælisdegi Pútíns.
Morðið á henni markaði tímamót í rússneskri blaðamennsku.
Tveimur áratugum síðar er Pútín enn við völd, stríð Rússlands gegn Úkraínu – sem hefur kostað hundruð þúsunda lífið – er á fimmta ári og kúgun innanlands hefur náð stigi sem ekki hefur sést síðan á tímum Sovétríkjanna.
„Allt sem er að …