Eftir áralanga bið eru viðgerðir hafnar á leik- og grunnskólanum á Breiðdalsvík. Vatnsskemmdir urðu á húsinu vegna leka. Skólahald verður fært til á meðan framkvæmdum stendur.
Skólarnir í Breiðdalsvík og Stöðvarfirði voru sameinaðir 2018 vegna fækkunar barna. Síðan þá hefur skólinn starfað á báðum stöðum og starfsfólk og nemendur fara á milli bæjanna tveggja eftir stundatöflu. Leikskólabörn eru alla daga í kennslu á Breiðdalsvík.
Steinþór Snær Þrastarson, skólastjóri, segir búið að ráðstafa um 60 milljónum króna í verkið sem er áætlað að taki um þrjá mánuði. Innanhúss framkvæmdirnar eiga þó aðeins að standa næstu fjórar vikur og raska skólastarfi lítillega á meðan.
Kennsla fyrir grunnskólabörnin verður á Stöðvarfirði
„Grunnskólinn verður á Stöðvarfirði allavega næstu 3-4 vikur en leikskólinn getur verið á Breiðdalsvík þó sé verið að vinna í húsnæðinu“, segir Steinþór.
Yfir þrjátíu ára gömlu gólfefni, kerfislofti og ljósabúnaði verður skipt út, skipt verður um glugga og gamla þakið sem hafði lekið um langa hríð verður rifið. og nýtt byggt.
„Það hefur ekki mælst mygla, sem betur fer. En það er búið að leka síðan ég var í skóla, að einhverju leyti, þannig í mjög mörg ár“, segir skólastjórinn.
Alls eru 37 nemendur í grunnskólanum. 16 þeirra búa á Stöðvarfirði og 21 á Breiðdalsvík. Nemendur fara í skólann í næsta bæ hluta úr viku svo hluti nemenda keyrir tæpa 20 kílómetra tvisvar á dag.
Það er eini skólinn á landinu með slíkt fyrirkomulag, að kennsla sé sitt á hvað milli bæja. Steinþór segir næsta mál á dagskrá að bæta öryggi á veginum milli skólanna. Foreldrar og skólaráð hafa í langan tíma bent á hve algengt grjóthrun sé úr Kambanesskriðum þar sem börnin fara um á hverjum degi.
Frekari skriðuvarnir á þeim vegi eru áætlaðar í samgönguáætlun í fyrsta lagi 2030.