Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakka, var í dag í opinberri heimsókn á Íslandi þar sem þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, undirrituðu viljayfirlýsingu um aukið samstarf ríkjanna í ýmsum málaflokkum.
Á blaðamannafundi nefndi Barrot að Íslendingar hefðu engu að tapa við að ganga aftur til viðræðna við Evrópusambandið, en hann vildi engu svara um hugsanlegar undanþágur fyrir Ísland frá sjávarútvegsstefnu sambandsins, sem hefur verið eitt helsta deilumál í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar sem haldin verður 29. ágúst um aðildarviðræður við ESB.
„Þetta er ekki spurningin í dag. Spurningin í dag – sú sem Íslendingar munu sem fullvalda þjóð taka ákvörðun um – snýst um það hvort hefja eigi viðræður. Þetta snýst ekki um aðild, ekki undanþágur, heldur snýst þetta um tækifæri.“
Þorgerður Katrín segir að hugsanlegar undanþágur hafi ekki borið á góma á fundi sínum með Barrot í morgun.
„Nei, við ræddum ekki undanþágur eða neitt slíkt, en hann dró mjög vel fram á þessum blaðamannafundi að þetta snýst fyrst og fremst um viðræður.“
Spurður hvort það kæmi sér á óvart hversu mikil andstaða væri á Íslandi gegn því að hefja aðildarviðræður að nýju svaraði Barrot að eðlilegt væri að fólk hefði skiptar skoðanir.
„En það sem ég get sagt er: Að hvert sinn sem Íslendingar hafa tekið ákvörðun um alþjóðasamvinnu, svo sem að gerast stofnaðili NATO eða að ganga í Evrópska efnahagssvæðið, hefur það að miklu leyti hagnast íslensku þjóðinni.“