Segir „falsfrétt“ og „óhróður“ að hún vilji bera ESB-aðild undir Bandaríkin
Ingibjörg Davíðsdóttir, þingkona Miðflokksins, sagði„mjög miður“ að ekki hafi verið fundað með Bandaríkjunum um „ hvað gerist með varnarsamning Íslands ef Ísland ákveður að ganga í Evrópusambandið“, en segir það jafngilda „falsfréttum“ að hún vilji bera aðild undir Bandaríkin.
Ingibjörg Davíðsdóttir, þingkona Miðflokksins, segir það „falsfrétt“, „óhróður“ og „upplýsingaóreiðu“ að hún vilji bera aðild Íslands að Evrópusambandinu undir Bandaríkin.
Heimildin fjallaði í gær um myndband sem Miðflokkurinn birti með skilaboðum Ingibjargar, sem vísaði til 25 ára reynslu í utanríkisþjónustunni, og varaði við aðildarviðræðum við ESB með deilitextanum „Ef þér er annt um öryggi og varnir Íslands, þá ert þú ekki að fara að segja já í ágúst.“
Í myndbandinu segir Ingibjörg að íslensk stjórnvöld hafi „því miður vanrækt samskipti sín við Bandaríkin“.
„Og það er mjög miður að þau hafi ekki sest niður með Bandaríkjunum, meðal annars til þess að ræða til dæmis hvað gerist með varnarsamning Íslands ef Ísland ákveður að ganga í Evrópusambandið.“
Þá sagði hún: „Það er ekki eitthvað sem hægt er að skoða eftir á.“
Ísland er aðili að Norður-Atlantshafssáttmálanum (NATO), ásamt 30 öðrum ríkjum, sem kveður á um að aðildarríki verji hvert annað komi til árásar á eitt þeirra. Á „grundvelli Norður-Atlantshafssamningsins“ gerðu Ísland og Bandaríkin tvíhliða varnarsamning árið 1951.
Ingibjörg segir í færslu á Facebook að fundur með Bandaríkjunum um hugsanlegar afleiðingar Evrópusambandsaðildar fyrir varnarsamninginn, sem hún þrýstir á, jafngilti því ekki að „bera undir“ Bandaríkin hugsanlega aðild Íslands að ESB.
„Bandaríkin og varnarsamningur okkar skipta Ísland máli og reglulegt samtal við þessa vinaþjóð okkar tel ég af hinu góða og mikilvæga, rétt eins og við aðrar samstarfsþjóðir okkar,“ segir hún á Facebook-síðu sinni.
„Það felur hins vegar alls ekki í sér að „bera“ sjálfstæðar ákvarðanir okkar undir aðra, eins og þessir fjölmiðlar reyna nú að halda fram. Slíkt kalla ég útúrsnúninga og falsfréttir.“
Þá segir hún að fréttaflutningur með þeim skilningi sé dreifing ósanninda. „Þessi fréttaflutningur Heimildarinnar og DV er því miður, að því er virðist, til þess fallinn að dreifa ósannindum og falsfréttum um þá sem hugnast ekki aðildarviðræður við ESB og ætla að segja NEI í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi. Slíkt er hvorki trúverðug né góð fréttamennska.“
--
Athugasemd ritstj. Í myndbandi sem dreift er á samfélagsmiðlum Miðflokksins gefur Ingibjörg Davíðsdóttir skýrt til kynna að öryggi Íslands stafi möguleg ógn af því að ganga í Evrópusambandið. Hún setur það sjálf í samhengi við hugsanleg áhrif aðildar á afstöðu Bandaríkjanna og leggur til í því samhengi að íslensk stjórnvöld kynni sér þá afstöðu með því að eiga samtal við bandarísk stjórnvöld um möguleg áhrif aðildar á varnarsamninginn. Kjarninn í boðskap Ingibjargar er að Ísland gæti glatað öryggi sínu og að ræða þurfi við Bandaríkin vegna ESB-aðildar til að afla upplýsingar um og fyrirbyggja það.
Í íslenskri nútímaorðabók Árnastofnunar merkir orðasambandið að „bera eitthvað undir einhvern“ að ráðfæra sig við viðkomandi. Á þeirri merkingu byggði frétt Heimildarinnar um áherslu og staðhæfingar þingmannsins, undir fyrirsögninni „Vill bera aðild Íslands að ESB undir Bandaríkin“.
Ingibjörg gengur raunar lengra en svo í röksemdum sínum, þar sem hún fullyrðir að möguleikinn einn og sér á neikvæðri afstöðu Bandaríkjanna eigi að útiloka íslenska kjósendur frá því að samþykkja í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu aðildarviðræður við Evrópusambandið, sé þeim annt um öryggi landsins. Þar af leiðandi hefði mátt kveða fastar að orði í fyrirsögn fréttarinnar en gert var. Því er afdráttarlaust hafnað að um „falsfrétt“ hafi verið að ræða.