Sandra Bullock hefur í fyrsta sinn rætt ítarlega um veikindi og andlát sambýlismanns síns, ljósmyndarans Bryans Randall, sem lést úr ALS fyrir þremur árum. Leikkonan segist hafa byrjað að syrgja manninn sem hún kallaði ástina í lífi sínu löngu áður en hann lést.Þetta kemur fram í nýju viðtali við Söndru í hlaðvarpsþættinum SmartLess en Page Six fjallar um efni viðtalsins.ALS, einnig þekktur sem Lou Gehrig-sjúkdómurinn, er algengasta gerð hrörnunarsjúkdómsins MNS og er ólæknandi.
Sandra Bullock rýfur þögnina þremur árum eftir andlát sambýlismannsins