Sólin skein í heiði víða um land í gær. Bragi Svavarsson tók þessa mynd í Húsadal í Þórsmörk þar sem rosabaugur sást umhverfis sólu.
Samkvæmt vef Veðurstofu Íslands myndsast rosabaugur þegar sólin skín í gegnum þunna skýjabreiðu hátt á himni. Í þessari hæð er frost og því ekki vatnsdropar í skýjunum heldur ískristallar.
„Ljósið frá sólinni brotnar í kristöllunum og það myndast eins konar regnbogi kringum sólina.“
Ískristallarnir eru sexstrendingar og ljósið breytir um stefnu þegar það skín í gegnum þá, en misjafnlega mikið.
Veðurstofan segir að algengasta stefnubreytingin sé 22 gráður „og því myndast hringur í þeirri fjarlægð frá sól á himninum“.