Viðgerð vegna háspennubilunar í Breiðholti er lokið og því ættu allir að vera komnir aftur með Rafmagn.
Rafagnslaust var víða í Breiðholti vegna háspennubilunar í kvöld. Bakkar, Seljahverfi og nágrenni voru án rafmagns. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum. Rafmagnslaust varð á tólfta tímanum. Tilkynning um að viðgerð væri lokið var birt tíu mínútum fyrir klukkan eitt í nótt.
Fréttin var uppfærð eftir að rafmagni var aftur komið á.