Utanríkisráðherra Frakklands segir ótímabært að ræða mögulegar undanþágur fyrir Ísland frá fiskveiðistefnu Evrópusambandsins. Hann segir það fyrir samninganefndir ESB og Íslands að skera úr um, greiði íslenska þjóðin atkvæði með því að hefja á ný aðildarviðræður við sambandið.
Þetta kom fram á blaðamannafundi Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra Íslands, eftir hádegi í dag.
Barrot lýsti þeirri skoðun sinni að Ísland hefði engu að tapa á því að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Þá fengju þeir að sjá hvaða kosti aðild að Evrópusambandinu hefði og gætu tekið ákvörðun út frá því.
Hann sagðist í fyrsta lagi geta lýst skoðun sinni á mögulegum undanþágum Íslands frá fiskveiðistefnu ESB þegar viðræður væru hafnar. Hins vegar væri það fyrst og fremst verkefni framkvæmdastjórnar sambandsins að semja um slíkt við Ísland í aðildarviðræðunum.
Franska þingið lýsti andstöðu sinni við að Ísland fengi undanþágur frá fiskveiðistefnu ESB árið 2010 þegar aðildarviðræður stóðu yfir. Spurður hvort afstaða franskra stjórnvalda hefði breyst sagði Barrot að margt hefði breyst síðan í síðustu viðræðum og að nýjar viðræður myndu taka mið af gjörbreyttu samhengi í alþjóðastjórnmálum.