Ökumenn á Ísafirði eru hvattir til að fara með gát eftir að glussi, eða vökvakerfisolía, lak á götu í bænum nú fyrir skemmstu.
Akbraut frá Pollagötu og Suðurgötu er mjög hál að því er fram kemur í tilkynningu frá Ísafjarðarbæ.
Unnið er að hreinsun og söndun götunnar af áhaldahúsi og slökkviliði.