Ferðafélag Íslands hefur endurbyggt skála félagsins í Langadal í Þórsmörk á grunni þess gamla. Húsið var smíðað á Selfossi og svo ekið með það í Þórsmörk þar sem því var púslað saman.
Gamli skálinn var reistur 1954 og byggt við hann 1972 og 1974. Upphaflega stóð til að lagfæra hann en á endanum var ákveðið að rífa hann og byggja nýjan á sama grunni.
„Það er verið að stækka, færa hann aðeins til nútímamyndar og komið með salerni inn í skálann líka fyrir gestina,“ segir Stefán Jökull Jakobsson, umsjónarmaður skála og fasteigna Ferðafélags Íslands, en fram til þessa hefur salerni verið í sérhúsi neðan við skálann.
Í nýja skálanum verður rúmgott anddyri og fleiri og stærri gluggar. „Við erum að setja stóra glugga til þess að nýta þetta mikilfenglega útsýni hérna yfir Eyjafjallajökul og yfir Krossáraura.“
Húsið var byggt í sex hlutum og ný geymsla að auki. Stærstu einingarnar voru 22 tonn að þyngd.
„Þetta var svolítið stórt batterí að koma öllum sjö treilerunum hérna inn eftir og þessum rúmlega 100 tonna krana til að hífa húsið á sinn stað,“ segir Stefán Jökull.
Og þá átti bara eftir að púsla þessu öllu saman. „Loksins sér maður árangurinn, að þetta er að taka enda, að koma þessu saman. Síðan klárum við að smíða inn í húsið kojur og eldhúsið og annað og 17. júní á næsta ári, á 100 ára afmæli Ferðafélagsins, munum við vígja húsið,“ segir Stefán Jökull.
Reynt var að halda í útlit gamla skálans eftir fremsta megni. „Það hefði bara ekki verið rétt að koma með nýtískulegt hús í allt öðrum byggingarstíl,“ segir Stefán Jökull. „Þetta er bara fjallaskáli með fjallaskálastíl og það er grunnforsendan sem við gengum út frá um leið og við héldum í '54 útlitið.“
Margir eiga góðar minningar úr Þórsmörk og gamla skálanum. „Þetta nýja hús býr til nýjar minningar og bætir á allar þær gömlu minningar sem eru til staðar hérna.“