Alls voru ríflega hundrað og fjörutíu mál skráð í kerfum lögreglu frá klukkan fimm til 17:00 en í það minnsta þrír voru vistaðir í fangageymslum á tímabilinu. Þá voru fimm ökumenn kærðir fyrir notkun farsíma við akstur, þrír á varðsvæði stöðvar eitt en tveir á varðsvæði stöðvar þrjú.
Nokkrir voru stöðvaðir og handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna en einn þeirra var vistaður í fangaklefa vegna annars máls. Flestir hinna voru látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.
Einn ökumaður var kærður fyrir að aka gegn rauðu ljósi og annar fyrir að aka hraðar en leyfilegt var eða á 108 kílómetrum á klukkustund þar sem leyfilegur hámarkshraði er áttatíu kílómetrar á klukkustund.
Þá var einn ökumaður kærður fyrir að hafa svokallaðar filmur í fremri hliðarrúðum.