Það er alltaf hátíð þegar íslenskir stjórnmálamenn taka fyrstu skóflustunguna að nýrri stórframkvæmd.Ráðherrann mætir, ljósmyndararnir smella af og framtíðin er að sjálfsögðu björt. Það er talað um tímamót, framfarir og nauðsyn þess að hugsa stórt.Það vantar yfirleitt aðeins einn gest í veisluna.Manninn með reiknivélina.Nýjasta tilefnið er öryggisfangelsið að Stóra-Hrauni. Þar tók dómsmálaráðherra fyrstu skóflustunguna að framkvæmd sem áætlað er að kosti um 30 milljarða króna þegar hún verður fullgerð.Þrjátíu þúsund milljónir króna.
Vilhelm Jónsson skrifar: Skóflustungan er ókeypis – reikningurinn ekki